Humarveiðin gengur vel

Búið er að veiða um 71,6% af humarkvótanum, sem er 2.200 tonn upp úr sjó. Rammi hf. og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum eru með um helming kvótans og hefur gengið vel hjá Ramma en VSV á meira eftir þar sem fyrirtækið geymdi 130 tonn frá síðasta ári. (meira…)

Strætó og nýtt tjaldstæði á �?jóðhátíð

Í dag fundaði stýrihópur vegna þjóðhátíðarinnar með þjónustuaðilum í Vestmannaeyjum. Í stýrihópnum eru Elliði Vignisson, bæjarstjóri, Ólafur Snorrason, Sigurður Smári Benónýsson frá Vestmannaeyjabæ og Páll Scheving, Tryggvi Már Sæmundsson, Guðjón Gunnsteinsson og Birgir Guðjónsson frá Þjóðhátíðarnefnd. Á fundinum kom m.a. fram að þjóðhátíðarnefnd ætlar að halda úti strætóferðum um bæinn og koma upp tjaldstæði við […]

Fjölga farþegum um hundrað í ferð yfir �?jóðhátíð

Á heimasíðu Herjólfs er greint frá því að skipið geti flutt 500 farþega í ferð í stað 400 eins og nú er. Herjólfur flutti áður rúmlega 500 en farþegum var fækkað niður í 400 þegar skipið hóf siglingar í Landeyjahöfn. Breytingin verður þó einungis um, yfir og eftir Þjóðhátíð. (meira…)

Takmarkanir siglinga í Landeyjahöfn

Óyfirbyggðir smábátar mega ekki sigla í Landeyjahöfn fari ölduhæð yfir einn metra samkvæmt nýrri reglugerð samgönguráðuneytisins. Stefnt er að því að framkvæmdum í nýju höfninni verði að mestu lokið í haust. (meira…)

Skemmtikraftar bóka seint í Herjólf

Breyta hefur þurft bókunum fyrir bíla sem hafði verið pantað fyrir með Herjólfi til Vestmannaeyja á föstudegi verslunarmannahelgarinnar. Ástæðan er sú að koma þarf fyrir farartækjum og búnaði skemmtikrafta og tæknifólks sem kemur að Þjóðhátíð Vestmannaeyja. (meira…)

Mikið að gera í afgreiðslu Herjólfs fyrsta daginn

Starfsfólk í afgreiðslu Herjólfs hefur í mörg horn að líta fyrsta daginn sem skipið siglir í Landeyjahöfn. Mikið er hringt inn og bæði spurt bókað en skipið siglir samkvæmt áætlun fjórar ferðir í dag en fimm á morgun, fimmtudag. Uppselt var fyrir bíla í dag í tvær ferðir af fjórum frá Landeyjahöfn en Herjólfur tekur […]

Aukablað um Landeyjahöfn fylgir Fréttum í dag

Tímamót urðu í samgöngumálum Eyjanna í gær, þegar Herjólfur sigldi í fyrsta skipti með farþega í hina nýju Landeyjahöfn. Í dag hófust áætlunarferðir skipsins þangað og verða sigldar fjórar ferðir. Starfsfólk Frétta hefur undanfarið unnið að sérstöku blaði um Landeyjahöfn, þar sem víða er komið við og sagan rakin. (meira…)

Edda María lánuð en fær ekki að spila

Edda María Birgisdóttir miðvallarleikmaður hefur verið lánuð til ÍBV frá Stjörnunni og mun leika með Eyjakonum í 1. deildinni í fótbolta í sumar. Edda María er með góða reynslu úr úrvalsdeildinni en þar hefur hún leikið með Fjölni og Stjörnunni. Hún lék 16 leiki í úrvalsdeildinni í fyrra og 18 leiki þar áður, en hefur […]

Fjölmenn vígsluathöfn Landeyjahafnar

Það fór varla framhjá mörgum að í dag var Landeyjahöfn formlega tekin í notkun með jómfrúarferð Herjólfs og vígsluathöfn hafnarinnar. Fjölmargir voru viðstaddir athöfnina, bæði Vestmannaeyingar sem fóru með Herjólfi upp í Landeyjahöfn, sem og aðrir gestir af fastalandinu. Fólkið naut veðurblíðunnar í Landeyjunum í dag en Herjólfur sigldi svo aftur til Eyja klukkan 19:00. […]

Skutlþjónusta í Landeyjahöfn

Nokkrir framtakssamir Eyjamenn hafa tekið höndum saman um að koma á þjónustu við þá sem þurfa skutl úr Landeyjahöfn til Reykjavíkur á einkabílum og deilt þar með kostnaði við aksturinn. (meira…)

Herjólfur lagstur að bryggju í Landeyjahöfn í fyrsta sinn

Kl. 16.35 lagðist Herjólfur að bryggju í Landeyjahöfn í fyrstu formlegu ferð sinni til hinnar nýju hafnar. Mikill fjöldi tók sér far með skipinu og enn fleiri tóku á móti því í Landeyjahöfn. Lúðrasveit Vestmannaeyja var meðal farþega og spilaði Eyjalögin. Og meðan beðið var eftir að skipið kæmi að bryggju var leikið á harmonikkur […]

Í brekkunni í loftið á mánudaginn

Á mánudaginn kl. 13 fer í loftið útvarpsþátturinn Í brekkunni á Suðurland FM. Þátturinn, sem er upphitunarþáttur fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, verður í loftinu fram á laugardag og ávallt þrjár tíma í senn og frá þriðjudegi verður þátturinn sendur beint út frá Volcano Café í Vestmannaeyjum. Brgsveinn Theodórsson, Bessi, segir að það verði þétt dagskrá […]

Hvernig er Landeyjahöfn?

Í fréttatilkynningu frá Siglingastofnun er farið ítarlega yfir alla tölfræði um Landeyjahöfn. Þar kemur m.a. fram að hafnarmynnið sé 90 metrar á breidd og 600 metrum utan við ferjubryggjuna. Bryggjan inni í höfninni er steypt úr forsteyptum einingum og er 70 metrar að lengd og með 10 metra og 15 metra löngum göflum. Þá er […]

Landeyjahöfn vígð í dag

Í dag verður Landeyjahöfn formlega vígð en Herjólfur er nú í sinni síðustu ferð til Þorlákshafnar. Eftir fyrri ferð skipsins samkvæmt áætlun, verður siglt upp í Landeyjahöfn í fyrsta skipti. Auk boðsgesta, býðst Eyjamönnum að koma með skipinu, svo lengi sem pláss leyfir. Komið verður til baka klukkan 19:00, eftir að athöfn lýkur. (meira…)

Tveir teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna

Enn er lögreglan í Vestmannaeyjum að taka ökumenn sem grunaðir eru um að aka undir áhrifum fíkniefna. Tveir voru stöðvarðir vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Fíkniefnapróf gaf jákvæða svörun við þvagprufum ökumannnanna og var því tekið úr þeim blóðsýni til frekari rannsókna. Í síðustu viku var sagt frá því […]

Bætt við ferðum fyrir og eftir �?jóðhátíð

Vegna mikillar aðsóknar hefur verið bætt við ferðum í áætlun Herjólfs bæði fyrir og eftir Þjóðhátíð. Skipið mun nú sigla átta ferðir á mánudeginum eftir Þjóðhátíð en auk þess hefur verið bætt við næturferð aðfararnótt föstudags. Þetta kemur fram á Þjóðhátíðarvefnum www.dalurinn.is. (meira…)

Vinnslustöðin auglýsir eftir fólki

Vinnslustöðin auglýsir í heilsíðu auglýsingu í Fréttablaðinu í dag eftir fólki í vinnu. Samkvæmt auglýsingunni hefur Vinnslustöðin breytt stjórnskipulagi sínu og því er auglýst eftir nýju fólki til að manna nýjar stöður í fyrirtækinu, og nokkrar stöður til viðbótar. Um er að ræða sviðsstjóra bolfisks, uppsjávarfisks, rekstrarstjóra, sölumann ferks og frosins bolfisks og verkstjóra í […]

Lokað í Straumi fimmtudag og föstudag

Vegna sumarleyfa verður lokað í Efnalauginni Straumi – Þvottahúsi fimmtudaginn 22. júlí og föstudaginn 23. júlí. Viðskiptavinum þvottahússins er bent á að koma með fatnað og annað sem þarfnast hreinsunar í dag eða í síðasta lagi á morgun, þriðjudag. Um leið biðjumst við velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að skapa viðskiptavinum okkar. (meira…)

Sumarblíðan í gegnum linsu Sísíar

Mikil sumarblíða hefur verið í Eyjum undanfarna daga og hafa Eyjamenn notið útiverunnar. Sigríður Högnadóttir, Sísí er einn besti ljósmyndari Eyjanna og hún myndaði Eyjarnar í blíðunni í síðustu viku. Sísí sendi Eyjafréttum nokkrar myndir sem birtast hér með fréttinni. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.