Charlton vill skoða Gunnar Heiðar betur

Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að enska félagið Charlton vilji skoða Eyjamanninn Gunnar Heiðar Þorvaldsson betur en Gunnar Heiðar var hjá félaginu til reynslu fyrr í mánuðinum. Gunnar segist vera á leið til félagsins í lok vikunnar en hann lék einn æfingaleik síðast þegar hann var til skoðunar en meiddist strax í […]

Hallgrímur fékk silfrið

Hallgrímur Júlíusson varð annar í Íslandsmótinu í höggleik unglinga sem fór fram á golfvellinum í Vestmannaeyjum um helgina. Hallgrímur varð aðeins tveimur höggum á eftir Bjarka Péturssyni, GB sem varð Íslandsmeistari í flokki 15-16 ára en keppni þeirra tveggja var æsispennandi. Þannig voru þeir jafnir í efsta sæti fyrir síðasta daginn en að lokum hafði […]

�?ruggur sigur hjá ÍBV

Kvennalið ÍBV lagði Fjarðabyggð/Leikni að velli í dag þegar liðin mættust á Hásteinsvellinum. Lokatölur urðu 5:1 og var sigur Eyjastúlkna nokkuð öruggur. Gestirnir skutu þó skelk í bringu stuðningsmanna ÍBV með því að minnka muninn í 2:1 í fyrri hálfleik en Eyjastúlkur svöruðu með þremur mörkum og þar við sat. (meira…)

Eyjamönnum boðið að vera við vígslu Landeyjahafnar

Á þriðjudag verður Landeyjahöfn vígð við hátíðlega athöfn en Herjólfur siglir síðustu ferð sína til og frá Þorlákshöfn fyrri part dags. Klukkan 16.00 siglir skipið hins vegar í fyrsta sinn upp í Landeyjahöfn en um borð verður m.a. samgönguráðherra, Kristján L. Möller og aðrir ráðamenn. Eyjamönnum býðst að sigla með Herjólfi í þessari fyrstu ferð […]

Hallgrímur í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn

Hallgrímur Júlíusson, nýkrýndur Vestmannaeyjameistari í golfi, er í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn í flokki kylfinga 15-16 ára. Mótið fer fram í Eyjum og er þriðji og síðasti dagurinn runninn upp núna. Hallgrímur sagðist fyrir mótið stefna að titlinum og til þessa, hefur hann staðið við það. (meira…)

Eyjamenn enn á ný á toppinn

Danien Justin Warlen er nafn sem stuðningsmenn ÍBV verða að leggja á minnið en þessi s-afríski sóknarmaður tryggði ÍBV sigurinn á Fram í dag. Danien var að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliðinu og í annað sinn sem hann er í leikmannahópnum. Hann nýtti tækifærið vel, spilaði vel framan af og skoraði sigurmarkið í 1:0 […]

Eyjamenn taka á móti Fram í dag

Eyjamenn hefja síðari umferð Íslandsmótsins á því að taka á móti Fram í dag klukkan 14.00 á Hásteinsvelli. Framarar unnu Eyjamenn í fyrsta leik Íslandsmótsins á Laugardalsvellinum, 2:0 en síðan þá hefur ÍBV aðeins tapað einum leik. Frömurum hefur ekki gengið sem skyldi í síðustu leikjum Íslandsmótsins, þrjú jafntefli og tap í síðustu umferð gegn […]

Herjólfur á leið aftur inn í Landeyjahöfn

Herjólfur fór í kvöld sína fyrstu ferð upp í Landeyjahöfn en um var að ræða prufuferð fyrir jómfrúarferðina á þriðjudag. Fjöldi fólks beið skipsins í Landeyjahöfn. Fréttamiðlar í Vestmannaeyjum hugðust fylgjast með siglingu skipsins en fréttamönnum var vísað frá borði að ósk Siglingastofnunnar. Samkvæmt nýjustu upplýsingum er Herjólfur á leið aftur inn í Landeyjahöfn, eftir […]

Yfirráðin yfir fjarstýringunni

Þegar aðeins eitt sjónvarp er húsinu, og fjarstýringin er líka ein, þá er stundum deilt um yfirráðin. Hver á að ráða því sem horft skal á í sjónvarpinu. – Hér er eitt ráð, sem svínvirkar. Allavega í þetta skiptið. (meira…)

ÍBV tekur á móti Fram á Hásteinsvelli á morgun

Eyjamenn þóttu taka stórt upp í sig í vor, þeir sögðust stefna á efri hlutann. Skrifari á heimasíðu Fram, var svo brattur að hafa nokkra trú þeim orðum Eyjamanna og spáði þeim 6. sæti. Frammistaða ÍBV hefur gert það að svartsýnisspá! – ÍBV hefur farið á kostum og er efst ásamt Blikum með 23 stig. […]

Sjúkraflug í Vestmannaeyjum

Mikil umræða hefur verið um stöðu sjúkraflugs í Vestmannaeyjum undanfarnar vikur og er ætlun mín að reyna að varpa ljósi á hvernig staðan er og hvort þeir sem slasast eða veikjast alvarlega hafi jafna möguleika og aðrir landsmenn til að fá besta mögulegu læknismeðferð á sem stystum tíma. Til að gera fólki grein fyrir hvað […]

Upppantað í nær allar ferðir með Herjólfi og Flugfélagi Íslands

„Þetta er ósköp svipað og verið hefur síðustu ár,“ sagði Bragi Ólafsson, hjá Flugfélagi Íslands, þegar hann var spurður út í bókanir fyrir þjóðhátíð. „Við vorum með 12 vélar á föstu­deginum í fyrra og verðum með 12 núna. Á mánudeginum vorum við með 28 vélar og erum komin með 22 vélar núna og ekki alveg […]

Íslandsmótið í höggleik unglinga hófst í morgun

Íslandsmótið í höggleik unglinga hófst í morgun á golfvellinum í Vestmannaeyjum. 161 kylfingur er skráður til leiks en keppt er í þremur aldursflokkum, karla og kvenna, 16-17 ára, 15-16 ára og 14 ára og yngri. Leiknar verða 54 holur, 18 hvern keppnisdag en mótinu lýkur á sunnudagskvöld. Ef veðurspáin rætist, verður algjör bongóblíða í Eyjum […]

Godthaab gerir það gott

Mikið hefur verið um að vera hjá fiskvinnslufyrirtækinu Godthaab í Nöf í Vestmannaeyjum, en í dag er fyrsti vinnudagur í nýju húsnæði fyrirtækisins. Þar snýst allt um makríl þessa dagana. „Það er búið að vera líf og fjör í allt sumar,“ segir framkvæmdastjórinn Jón Ólafur Svansson. (meira…)

Fór holu í höggi í gær

Huginn Helgason, knattspyrnuþjálfari og hreinsitæknir náði draumahöggi allra kylfinga í gær þegar hann fór holu í höggi. Draumahögginu náði hann á 12. braut á golfvellinum í Vestmannaeyjum en til verksins brúkaði hann 7-járn. 12. brautin er par þrjú braut og 142 metra löng frá gula teignum, þar sem Huginn og félagi hans, Ragnar Hilmarsson slógu […]

Tökur á Djúpinu að hefjast

Baltasar Kormákur og fyrirtæki hans Sögn ehf hefja brátt tökur á nýrri kvikmynd, sem kallast DJÚPIÐ. Um er að ræða leikna bíómynd sem byggir á sannsögulegum atburðum frá árinu 1984 þegar Hellisey VE fórst nálægt Vestmannaeyjum og Guðlaugi Friðþórssyni tókst með undraverðum hætti að halda lífi, eins og alþekkt er. (meira…)

Fyrsta ferðin á þriðjudag

Herjólfur siglir fyrstu ferð sína næstkomandi þriðjudag, 20. júlí og mun leggjast að bryggju 16.30 í Landeyjahöfn. Áætlun skipsins tekur svo gildi daginn eftir, miðvikudaginn 21. júlí. Samkvæmt áætlun fer skipið frá Eyjum 7:30 og fyrsta ferð frá Landeyjahöfn er svo 9:00. Síðasta ferð frá Eyjum er svo klukkan 20.00 og frá Landeyjahöfn 21:30. Áætlað […]

Tafir á áætlun Herjólfs vegna endurbóta

Nokkrar tafir hafa orðið á brottför Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs á morgnana sem rekja má til framkvæmda um borð í ferjunni. Unnið hefur verið að því að skipta um hluti í olíuverki skipsins, og hefur þetta verið gert á nóttunni svo skipið geti siglt á daginn. (meira…)

Mýflug flýgur á �?jóðhátíð, ekki Norlandair

Í frétt hér á Eyjafréttum í gær var sagt frá því að Norlandair muni fljúga milli Vestmannaeyja og Bakkaflugvallar yfir verslunarmannahelgina. Það er ekki rétt, því það er annað norðlenskt flugfélag, Mýflug sem mun sinna þessu flugi yfir verslunarmannahelgina. Norlandair hefur hins vegar flogið undanfarna daga á flugleiðinni og verður áfram næstu daga áður en […]

Bara blíða

Jæja nú eru pungarnir farnir til makrílveiða, þ.e. Bergey/Vestmannaey að tvílembast. Dala Rafn fór aleinn á makríl og spennand að fylgjast með hvernig gengur. VSV skirrist við að hækka verðið í bræðsluna, eru komnir í 32 kr. en aðrir sem gera út á að bræða borga kr. 37-39 fyrir makrílinn. Svo er kapítuli út af […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.