Tökur á Djúpinu að hefjast

Baltasar Kormákur og fyrirtæki hans Sögn ehf hefja brátt tökur á nýrri kvikmynd, sem kallast DJÚPIÐ. Um er að ræða leikna bíómynd sem byggir á sannsögulegum atburðum frá árinu 1984 þegar Hellisey VE fórst nálægt Vestmannaeyjum og Guðlaugi Friðþórssyni tókst með undraverðum hætti að halda lífi, eins og alþekkt er. (meira…)
Fyrsta ferðin á þriðjudag

Herjólfur siglir fyrstu ferð sína næstkomandi þriðjudag, 20. júlí og mun leggjast að bryggju 16.30 í Landeyjahöfn. Áætlun skipsins tekur svo gildi daginn eftir, miðvikudaginn 21. júlí. Samkvæmt áætlun fer skipið frá Eyjum 7:30 og fyrsta ferð frá Landeyjahöfn er svo 9:00. Síðasta ferð frá Eyjum er svo klukkan 20.00 og frá Landeyjahöfn 21:30. Áætlað […]
Tafir á áætlun Herjólfs vegna endurbóta
Nokkrar tafir hafa orðið á brottför Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs á morgnana sem rekja má til framkvæmda um borð í ferjunni. Unnið hefur verið að því að skipta um hluti í olíuverki skipsins, og hefur þetta verið gert á nóttunni svo skipið geti siglt á daginn. (meira…)
Mýflug flýgur á �?jóðhátíð, ekki Norlandair

Í frétt hér á Eyjafréttum í gær var sagt frá því að Norlandair muni fljúga milli Vestmannaeyja og Bakkaflugvallar yfir verslunarmannahelgina. Það er ekki rétt, því það er annað norðlenskt flugfélag, Mýflug sem mun sinna þessu flugi yfir verslunarmannahelgina. Norlandair hefur hins vegar flogið undanfarna daga á flugleiðinni og verður áfram næstu daga áður en […]
Bara blíða

Jæja nú eru pungarnir farnir til makrílveiða, þ.e. Bergey/Vestmannaey að tvílembast. Dala Rafn fór aleinn á makríl og spennand að fylgjast með hvernig gengur. VSV skirrist við að hækka verðið í bræðsluna, eru komnir í 32 kr. en aðrir sem gera út á að bræða borga kr. 37-39 fyrir makrílinn. Svo er kapítuli út af […]
Margrét Lára meidd

Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að Margrét Lára Viðarsdóttir er meidd. Hún telur ólíklegt að hún nái leiknum mikilvæga gegn Frökkum 21. ágúst en það er úrslitaleikur um efsta sæti riðilsins í undankeppni HM. „Það eru meiri líkur en minni á að ég missi af Frakkaleiknum eins og staðan er núna. Ég er sam […]
Lundastofn að hrynja í Eyjum
„Lundarnir afrækja eggin hér í Eyjum í stórum stíl og við höfum ekki séð þetta svona áður,“ segir Erpur Snær Hansen, líffræðingur hjá Náttúrustofu Suðurlands. „Þetta er hreinlega að hrynja hérna í Eyjum.“ Að sögn Erps hafa fuglarnir verpt umtalsvert í Eyjunni. „Þetta er mesta varpið síðan árið 2007. En afræktin er afar mikil sem […]
Möguleikarnir koma í ljós á leikdegi

„Það leggst ágætlega í mig. Ég sóttist eftir heimaleik og fékk hann. En hvað andstæðinginn varðar, þá segi ég sem minnst um það. Þetta eru allt saman frábær lið. Það skiptir engu máli á þessu stigi hverjum þú ert að mæta. Aðalatriðið er að fá heimaleik,“ sagði Jón Ólafur Daníelsson eftir bikardráttinn í hádeginu á […]
ÍBV fékk heimaleik gegn Stjörnunni

Nú rétt í þessu var verið að draga í undanúrslitum Visabikars kvenna en 1. deildarlið ÍBV var í pottinum ásamt þremur af bestu úrvalsdeildarliðunum. Eyjastúlkur fengu heimaleik og munu taka á móti Stjörnunni úr Garðabæ. Í hinni viðureigninni mætast Valur og Þór/KA á Hlíðarenda. Leikirnir fara báðir fram laugardaginn 24. júlí klukkan 14.00. (meira…)
Sló lögreglumann í andlitið
Einn aðili var kærður fyrir ofbeldi gegn lögreglu en sá sló lögreglumann hnefahöggi í andlitið svo á sá. Lögreglan hafði bankað upp á hjá manninum þar sem kvartað hafði verið undan hávaða frá íbúð hans. Maðurinn brást hins vegar illa við heimsókn lögreglunnar og heilsaði að sjómannssið. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Þá […]
Bryggjudagurinn á laugardag

Hinn árlegi Bryggjudagur ÍBV-íþróttafélags og Böddabita verður næstkomandi laugardag, 17. júlí í Fiskmarkaðshúsinu í Friðarhöfn. Fjölmargt verður í boði eins og alltaf en m.a. verður veglegur fiskmarkaður með fjölbreyttu úrvali fisktegunda, Grímur kokkur og Böddabiti kynna vörur, Dorgkeppni fyrir börn, tuðru- og jetskiferðir fyrir börnin og veitingasala. (meira…)
Dregið í bikarnum í hádeginum

Í hádeginu í dag verður dregið í undanúrslitum í Visabikar karla og kvenna. ÍBV er í pottinum í kvennakeppninni en liðið lagði úrvalsdeildarlið Hauka að velli í 8-liða úrslitum síðasta föstudag. Þrjú af fjórum efstu liðum úrvalsdeildarinnar eru í pottinum með ÍBV en það eru Valur, Þór/KA og Stjarnan. Hlíf Hauksdóttir, miðjumaður ÍBV sagði eftir […]
Norlandair og Norðurflug fljúga frá Bakka á �?jóðhátíð

Nú hefur fengist staðfest að í það minnsta tvö flugfélög muni fljúga frá Bakkaflugvelli á Þjóðhátíð. Norðurflug mun bjóða upp á þyrluflug milli lands og Eyja en flugið aðra leið kostar 13.000 krónur. Þá hefur flugfélagið Norlandair á Akureyri boðað komu sína á Bakkaflugvöll með eina, nýlega eins hreyfils flugvél, Airvan sem tekur sjö farþega. […]
�?órunn Sveinsdóttir VE tilbúin í nóvember

„Þetta gengur ágætlega núna og tæp vika síðan skipið var dregið frá Póllandi til Danmerkur,“ sagði Viðar Sigurjónsson þegar hann var spurður hvernig smíðin á Þórunni Sveinsdóttur gengi. „Danir eru að setja rafmagn, tæki og búnað um borð í skipið og við reiknum með að Þórunn verði komin heim í endaðan nóvember. Skrokkurinn var smíðaður […]
Gunnar Heiðar náði ekki að heilla forráðamenn Charlton

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem er til reynslu hjá enska 2. deildarliðinu Charlton, varð fyrir því óláni að meiðast í æfingaleik liðsins gegn AFC Wimbledon á laugardaginn. Hann mun því ekki geta tekið þátt í næsta æfingaleik Charlton gegn Welling sem fram fer á morgun og er óvíst með framhald hans hjá félaginu. (meira…)
Heimir þjálfari fyrri umferðar Íslandsmótsins

Karlalið ÍBV situr í öðru sæti Pepsídeildarinnar í knattspyrnu þegar Íslandsmótið er hálfnað en fyrir mótið áttu fæstir von á því að liðið yrði í þessari stöðu. Knattspyrnuvefurinn Fótbolti.net gerir upp fyrri umferðina í dag en vefurinn valdi Heimi Hallgrímsson, þjálfara ÍBV þjálfara fyrri umferðarinnar. Þá var enski bakvörðurinn James Hurst valinn besti ungi leikmaðurinn […]
�?g kvíði fyrir �?jóðhátíð á hverju einasta ári!

Tilhlökkun vegna Þjóðhátíðar í Eyjum eykst dag frá degi – nema á lögreglustöðinni. Þar taka menn ekki gleði sína aftur fyrr en að lokinni Þjóðhátíð. Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, segist vonast til þess að gestir á Þjóðhátíð í Eyjum í ár verði ekki fleiri en 16.000 en í fyrra voru þeir um 14.000. Hann […]
Hækkuðu laun sín um fimmtung

Bæjarstjórn Vestmannaeyja fjallaði um þóknun til fulltrúa í nefndum og ráðum á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. „Vægi nefndarsæta skal haldast óbreytt frá því sem verið hefur. Fyrir grunneiningu skal greitt 7229 kr.,“ segir í fundargerð. Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ var grunneining áður 6083 krónur sem þýðir 20 prósenta hækkun. (meira…)
�?kumenn sýnið aðgát

Starfsmenn Vestmannaeyjabæjar vinna nú hörðum höndum að viðhaldi og fegrun umhverfisins. Meðal þeirra verka sem til falla á hverju sumri er að mála línur og gangbrautir á götur bæjarins en þessa dagana vinna tveir hópar við að mála línurnar. Á hverjum stað er helmingi götunnar lokað með keilum, bæði á meðan málað er og á […]
Uppselt í 22 vélar á mánudag hjá Flugfélagi Íslands
Bókanir ganga mjög vel í flug og skip fyrir þessa Þjóðhátíð. Nýjustu fréttir af bókunum í flug koma ekki á óvart í kjölfar mikilla bókanna hjá Herjólfi. Fimmtudaginn 29. júlí eru 6 vélar á áætlun og uppselt í 3. Föstudaginn 30. júlí eru svo 11 vélar á teikniborðinu og uppselt í 9. (meira…)