Okkar tilfinning að fíkniefnaneyt­endur séu orðnir yngri

Fíkniefnavandinn hefur farið vax­andi á Íslandi undanfarin ár og eru Vestmannaeyjar þar engin undantekning. Illa virðist ganga að ná stjórn á þessum vanda en að öllu jöfnu ætti að vera hægt að stýra honum, eða halda honum í lág­marki, með virkum forvörnum og fræðslu til ungmenna. En er eitt­hvað annað til ráða og hvað getum […]

�?ruggir sigrar hjá ÍBV og KFS

Kvennalið ÍBV vann sannfærandi sigur á Sindra austur á Hornafirði í gær en liðin leika í B-riðli 1. deildar. Lokatölur urðu 1:6 en staðan í hálfleik var 0:3. Eyjastúlkur komust í 0:5 áður en heimastúlkur náðu að svara á 87. mínútu en ÍBV tókst svo að skora síðasta mark leiksins. Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði þrennu […]

Hallgrímur Júlíusson sigurvegari í meistaraflokki og öldungaflokki

Þeir verða sjálfsagt hissa þeir sem renna yfir verðlaunahafa Vestmannaeyjamótsins í golfi en eins og áður hefur komið fram, varð hinn 16 ára gamli Hallgrímur Júlíusson meistari í fyrsta sinn. En þegar rennt er yfir listann yfir verðlaunahafa mótsins kemur í ljós að Hallgrímur Júlíusson vann einnig í öldungaflokki. Hvernig stendur á því? Jú í […]

Hallgrímur Vestmannaeyjameistari í golfi

Hallgrímur Júlíusson var nú fyrir stundu krýndur Vestmannaeyjameistari í golfi en Hallgrímur er aðeins 16 ára gamall og eftir því sem næst verður komist, er hann yngsti klúbbmeistari GV frá upphafi. Hallgrímur endaði með sex högga forystu á vallarstjórann margreynda Örlyg Helga Grímsson en Hallgrímur lék hringina fjóra á 74, 72, 70 og 70, sem […]

Verð seint valinn vinsælasti keppandinn í deildinni

Tryggvi Guðmundson ætlaði að fljúga með Keflavíkurliðinu í land eftir 2-1 sigur ÍBV á fimmtudaginn. Hann hætti þó snarlega við þar sem Keflvíkingar voru brjálaðir út í Tryggva. Ástæðan er sú að hann var viðriðinn atvik sem lauk með því að Guðjón Árni Antoníusson fékk rautt spjald áður en ÍBV tryggði sér sigur. (meira…)

KFS tekur á móti �?rótti í dag

KFS tekur í dag á móti Þrótti Vogum í B-riðli 3. deildar en leikur liðanna fer fram á Helgafellsvelli og hefst klukkan 13.00. Eyjamenn hafa verið á mikilli siglingu undanfarið, eftir slaka byrjun en KFS tapaði fyrstu tveimur leikjum Íslandsmótsins með markatölunni 1:10. En síðan þá hefur KFS unnið þrjá leiki og gert eitt jafntefli. […]

Farþegar fengu ekki kojur

Farþegar sem átt hafa pantaðar kojur í ferðum Herjólfs frá Þorlákshöfn fengu ekki af­greiddar kojur um borð sl. föstu­dag né heldur með fyrri ferð mánudags og þriðjudags. Ástæð­an fyrir því er að konu, sem sá um að skipta um rúmföt á kojum og rúmum í Þorlákshöfn, var sagt upp störfum frá og með 1. júlí […]

Landshlutamót unglingadeilda á Suðurlandi í Eyjum

Landshlutamót unglingadeilda björgunarfélaga á Suðurlandi verður haldið í dag, laugardag í Eyjum. Um 200 ungmenni og fylgdarlið munu þá storma um eyjuna en hópurinn gistir allur suður í skátastykkinu. Hægt er að sjá dagskrá mótsins hér að neðan. (meira…)

ÍBV í undanúrslit bikarkeppninnar

ÍBV er komið í undanúrslit Visabikarkeppninnar en liðið lagði úrvalsdeildarlið Hauka að velli í dag 2:0 en Eyjastúlkur leika í 1. deild. Sigur ÍBV var síst of stór en Eyjastúlkur voru mun sterkari í síðari hálfleik, eftir frekar jafnan fyrri hálfleik. Hinir þrír leikirnir í átta liða úrslitum bikarkeppninnar fara svo fram í kvöld og […]

Christiansen hjá ÍBV út tímabilið 2011

Danski miðvörðurinn Rasmus Steenberg Christiansen skrifaði nú fyrir skömmu undir rúmlega árs samning hjá ÍBV. Christiansen hefur verið í láni hjá ÍBV í sumar frá danska úrvalsdeildarliðinu Lyngby en lánssamningurinn átti að renna út 18. júlí næstkomandi. Danska félagið riftir hins vegar samningi sínum við leikmanninn og kemur hann því til Eyjamanna án greiðslu. (meira…)

Árni Stefánsson ráðinn til ÍBV

Árni Stefánsson, handknattleiksþjálfari hefur verið ráðinn til ÍBV. Árni gerir tveggja ára samning við Eyjamenn en hann kemur til með að vera yfirþjálfari yngri flokka, þjálfa 3., 4. og 5. flokk karla og starfa sem forstöðumaður íþróttaakademíu ÍBV og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum sem komið verður á fót í vetur. Árni er þrautreyndur þjálfari, hefur m.a. […]

Mikið hitaútstreymi í jöklinum

„Það er ekkert óvanalegt að gerast. Það er mjög mikið hitaútstreymi frá gígnum ennþá, og það kemur aðallega í formi gufu,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur, sem flaug yfir jökulinn í morgun. Hann segir gufumökkinn rísa í um þriggja til fjögurra km hæð. (meira…)

�?tlar að synda úr Landeyjahöfn og til Eyja

Sundkappinn Benedikt Lafleur ætlar að synda úr Landeyjahöfn til Vestmannaeyja sunnudaginn 18. júlí næstkomandi. Benedikt er vanur sjósundskappi, synti m.a. Drangeyjasund á síðasta ári en það sund er um 8 kílómetrar. Leiðin milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja er hins vegar rúmir 11 kílómetrar en Benedikt segist óhræddur. (meira…)

Stelpurnar mæta Haukum í dag

Kvennalið ÍBV mætir úrvalsdeildarliði Hauka í 8-liða úrslitum Visabikarkeppninnar í dag en leikurinn hefst á afar óvenjulegum tíma eða klukkan 16.00. Síðast þegar liðin léku á Hásteinsvelli, 24. júní 2009, þá fóru Eyjastúlkur illa með Hauka og unnu 4:0. Haukar komust hins vegar upp úr 1. deild á meðan Eyjastúlkur sátu eftir. En þótt Haukar […]

Sálfræðilegur léttir að vinna svona leik

Brosið ætlaði varla að fara af Heimi Hallgrímssyni, þjálfara ÍBV eftir leikinn gegn Keflavík enda sigurinn dramatískur og sigurmarkið eitt af fallegri mörkum sumarsins. Heimir segir að þrátt fyrir að leikurinn hafi nánast verið stál í stál í síðari hálfleik, þá hafi hann alltaf haft það á tilfinningunni að fleiri mörk myndi líta dagsins ljós. […]

�?vílíkt og annað eins sigurmark!

Það verður ekki annað sagt en að dramatíkin hafi verið allsráðandi á lokakaflanum í leik ÍBV og Keflavíkur. Keflvíkingur byrjuðu á að skjóta í stöng, Tonny Mawejje skaut í slá í algjöru dauðafæri, Keflvíkingar fengu rauða spjaldið og þegar öll von virtist úti, kom varnarmaðurin Eiður Aron Sigurbjörnsson, klippti boltann á lofti og negldi boltanum […]

Tveir Eyjamenn sækja um í Grindavík

Tveir Eyjamenn eru meðal þeirra 51 umsækjenda sem hafa lagt inn umsókn um stöðu bæjarstjóra Grindavíkur, þeir Andrés Sigurvinsson og Þorsteinn Gunnarsson. Andrés hefur verið verkefnastjóri hjá Árborg undanfarið en áður var hann framkvæmdastjóri hjá Vestmannaeyjabæ. Þorsteinn er upplýsinga- og þróunarfulltrúi í Grindavík en vann m.a. áður hjá Stöð 2 og á vikublaðinu Fréttum í […]

Sumarblíða í Eyjum

Nú er einmuna sumarblíða í Vestmannaeyjum en Eyjamenn og gestir þeirra hafa notið veðurblíðunnar utandyra í dag. Öskufjúk gerði Eyjamönnum lífið leitt í gær með tilheyrandi roki en í dag er allt annað uppi á teningnum. Samkvæmt mælingum Veðurstofu Íslands fór hitinn upp í tæpar 17 gráður í Vestmannaeyjabæ í dag en hitastigið hefur sjálfsagt […]

Binni flottur á Hrafnaþingi

Ég eins og margir aðrir hef verið dálítið gagnrýnin á kvótakerfið og þá einkum varðandi veðsetningu og hvernig útgerðarmenn hafa getað selt og leigt fyrir himinháar upphæðir. Það var því forvitnilegt að hlusta í fyrrakvöldi á Binna í Vinnslustöðinni ræða um fyrningaleiðina, sem Samfylkingin hefur boðað. Binni dró upp mjög skýra mynd af því hvernig […]

Foreldrum boðið að vinna við gæslu í skiptum fyrir æfingagjöld

Eins og undanfarin ár hyggst ÍBV-íþróttafélag að bjóða foreldrum barna sem æfa hjá félaginu, að vinna fyrir æfingagjöldum barnanna. Foreldrar vinna þá við gæslu á Þjóðhátíð gegn niðurfellingu æfingagjaldanna en sami háttur hefur verið hafður á undanfarin ár og hefur fyrirkomulagið mælst vel fyrir. Í bréfi til foreldra og forráðamanna er þeim boðinn þessi kostur […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.