Unnið að hönnun á nýju húsnæði

Þekkingarsetur Vestmannaeyja hefur gert samning við Vestmannaeyjabæ um rekstur á Fiska- og Náttúrugripasafni Vestmannaeyja í eitt ár. Samningurinn tók gildi 1. janúar en þá lét Kristján Egilsson forstöðumaður safnsins af störfum vegna aldurs. Páll Marvin Jónson, forstöðumaður Þekkingarsetursins, verður yfirmaður safnsins en Margrét Lilja Magnúsdóttir, líffræðingur, annast daglegan rekstur og Georg Skæringsson kemur að viðhaldi […]

Á Ceausescu vitfirring að bjarga íslensku þjóðfélagi

Stjórn Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Eyjum, sem haldinn var í gærkvöldi, segist sammála LÍÚ um að sigla flotanum í land. Í greingerð með samþykktinni segja þeir að íslenskt þjóðfélag hafi tapað tugum milljarða á fávisku ríkisstjórnarinnar í sambandi við sjávarútvegsmál og eiga þá við makrílveiðarnar, strandveiðarnar, þar sem vinna var tekin af alvöru sjómönnum […]

Stendur fram í nóvember

Ljósmyndasafn Vestmannaeyja ætlar í samstarfi við Fréttir að fara af stað með ljósmyndasamkeppni sem standa mun fram í nóvember. Veitt verða verðlaun fyrir bestu myndina en besta mynd hvers mánaðar verður birt í Fréttum. Jóhanna Ýr Jónsdóttir, safnstjóri Ljósmyndasafnsins, á hugmyndina að keppninni og vill með því vekja athygli á safninu sem hefur að geyma […]

Störf í hættu?

Sex starfsmenn hafa unnið í Safnahúsi við skráningarverkefni á vegum Þjóðskjalasafns Íslands. Nú hefur fræðslu- og menningarráði verið tilkynnt að fjárveiting vegna verkefnisins sé runnin út. Í bókun ráðsins kemur fram að útlit sé fyrir að úthlutun fjármagns verði skorin niður um helming og að skráning á manntölum sé bæði brýnt verkefni og atvinnuskapandi. (meira…)

Vegna fyrirhugaðar skiptingar skjólstæðinga í samlög

Frá og með 15.02.2010 er fyrirhuguð breyting á núverandi fyrirkomulagi við Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Í stað þess að sjúklingar hafi ekki fastan heimilis-/heilsugæslulækni er ætlunin að skipta skjólstæðingum Heilsugæslustöðvar Vestmannaeyja í 4 samlög sem deilast jafnt á þá fjóra heimilis-/heilsugæslulækna sem þar starfa. (meira…)

FÍV komst í aðra umferð

Lið FÍV lenti ekki í teljandi vandræðum með lið Framhaldsskólans í Mosfellsbæ í Gettu betur í kvöld. FÍV hafði betur 9:6 en stigaskor viðureigninnar var óvenjulágt. Þetta mun vera, samkvæmt heimildum Eyjafrétta, í þriðja sinn sem FÍV kemst í aðra umferð keppninnar. Þá komst FÍV alla leið í 8 liða úrslit keppninnar og í sjónvarpshluta […]

Reynt að semja um tilraunarekstur

Vegagerðin vonast til að fyrirkomulag siglinga til Vestmannaeyja, eftir að Landeyjahöfn verður tekin í gagnið 1. júlí næstkomandi, skýrist í þessum mánuði. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum segir erfitt að selja ferðafólki ferðir til Vestmannaeyja í sumar þegar ekki er vitað um ferðaáætlun og gjaldskrá. (meira…)

Fellst á tillögu Eyjamanna

Kristján L. Möller, samgönguráðherra segir að tillaga bæjarráðs um að færa laugardagsferð Herjólfs til seinni part dags verði að veruleika. Kristján segist hafa lesið um tillögu bæjarráðs á Eyjafréttum fyrr í dag og ekkert sé því til fyrirstöðu að hnika til áætlun Herjólfs. „Við lesum það svo á Eyjafréttum í dag að bæjarráð leggur til […]

Eldur í bílskúr einbýlishúss

Rétt fyrir klukkan þrjú í dag var Slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að Búhamri 36 en eldur var laus í bílskúr hússins, sem er áfastur einbýlishúsinu. Eldurinn náði þó ekki að breiðast út en það var ekki síst að þakka skjótum viðbrögðum Slökkviliðsins og þeirra sem urðu eldsins varir. Engin slys urðu á fólki. (meira…)

�?tiloka ekki á aðkomu bæjarins að HS-veitum

Bæjarráð fjallaði um bréf frá HS-veitum hf á fundi sínum í gær en í bréfinu er þeirri hugmynd varpað fram að sveitarfélög sem nota þjónustu fyrirtækisins kaupi hlut í HS-veitum. Eins og flestir vita seldi Vestmannaeyjabær hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja, sem síðar varð HS-veitur og HS-orka en söluandvirðið gerbreytti fjárhagsstöðu bæjarins. Elliði Vignisson, bæjarstjóri […]

FÍV í kvöld í Gettu betur

Í kvöld, klukkan 20:30 keppir Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum í spurningakeppni Framhaldsskólanna á RÚV, Gettu betur. Fyrstu umferðirnar fara fram á Rás 2 en síðan tekur við keppni í sjónvarpi. FÍV hefur ekki riðið feitum hesti frá keppninni, aðeins einu sinni komist í sjónvarpshluta keppninnar en lið FÍV í ár ætlar að snúa þeirri hefð við. […]

Ráðuneytinu lokað og ráðherra farinn heim á Sigló?

Eins og greint var frá í gær þá var hefur bæjarráð miklar áhyggjur af stöðu samgangna við Vestmannaeyjar en niðurskurðarhnífur ríkisstjórnarinnar hefur höggið reglulega á samgöngumálum Eyjanna undanfarið. Eyjafréttir.is leituðu svara hjá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra hvort hið opinbera hafi engu svarað með fyrirhugaða fækkun ferða Herjólfs, eins og kemur fram í fundargerð bæjarráðs. Einnig er […]

Megn óánægja

Enn og aftur komum við að því að menn á ríkisjötunni eru með puttana og hugann annars staðar en hann á að vera. Það er náttúrulega með hreinum ólíkindum að ekki skuli búið að gefa út neitt varðandi ferðatíðni á þessum siglingum. Auðvitað byrjar sumarið á því að gamla siglingaleiðin verur en í notkun en […]

Tugmilljóna tjón fyrir ferðaþjónustuna í Eyjum

Engar upplýsingar liggja fyrir varðandi ferðaáætlun í Landeyjahöfn sem áætlað er að opna 1. júlí næstkomandi eða eftir aðeins tæpa sex mánuði. Ekki er hægt að bóka ferðir með farþegaferjunni Herjólfi eftir 1. júlí 2010, sem þýðir að hvorki er hægt að taka við bókunum á Goslokahátíð og Þjóðhátíð. Til að opna fyrir þann möguleika […]

Algert skilningsleysi gagnvart stöðu Vestmannaeyja

Á fundi bæjarráðs í dag var fjallað um stöðuna sem upp er komin í samgöngumálum en nú síðast var ferðum Herjólfs fækkað um tvær ferðir á viku og gjaldskrá ferjunnar var hækkuð. Í fundargerð bæjarráðs eru talin upp niðurskurðaraðgerðir ríkisins gagnvart Vestmannaeyingum og þætti mörgum nóg um. „Algert skilningsleysi er gagnvart þeirri staðreynd að Vestmannaeyjar […]

Fjórtán útköll hjá slökkviliði Vestmannaeyja á árinu

Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað fjórtán sinnum út á síðasta ári en mesta tjónið var þegar Lifrasamlag Vestmannaeyja brann, bæði menningarlegt og fjárhagslegt tjón. Þá hefði einnig getað farið illa þegar kveikt var í langferðabifreið við flugeldageymslu Björgunarfélagsins en slökkviliðinu tókst að slökkva eldinn áður en hann læsti sig í byggingunni. (meira…)

Gunnar Heiðar kominn með leikheimild

Gunnar Heiðar Þorvaldsson er kominn með leikheimild með enska 1. deildarliðinu Reading og mun að öllum líkindum spila sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Nottingham Forest á laugardaginn. Hins vegar er ljóst að hann leikur ekki með liðinu gegn Liverpool á Anfield í ensku bikarkeppninni annað kvöld þar sem hann var ekki kominn með leikheimild […]

Vill kanna áhuga sveitarfélaga á endurkomu þeirra að HS-veitum hf.

Reykjanesbær, sem meirihlutaeigandi í HS veitum hf., vill kanna áhuga á stækkun fyrirtækisins og endurkomu fleiri sveitarfélaga í það. Hefur sveitarfélögum sem nota þjónustu HS veitna hf. verið sent bréf þar sem þeim er boðið að kaupa hlut í fyrirtækinu í hlutfalli við þjónustuumfang þeirra. (meira…)

Loðnuleit hefur skilað litlu

Hafrannsóknarskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson eru nú norðaustur af Langanesi og eru því við það að loka hringnum í sameiginlegum loðnuleitarleiðangri sínum umhverfis landið. Skipin héldu úr Höfn í Reykjavík þann 5. janúar og Bjarni Sæmundsson fór vestur fyrir land en Árni Friðriksson austur með landinu. (meira…)

Rændi rússneskum rúblum

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og nokkuð um að lögreglan þuftir að hafa afskipti af fólki í heimahúsum vegna kvartana um hávaða. Þá var eitthvað um stympinga við skemmtistaði bæjarins en þeir voru flestir leystir á staðnum, án afskipta lögreglu. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.