�?sanngjarnt gegn Valsmönnum

Það verður seint sagt að úrslitin í leik ÍBV og Vals gefi rétta mynd af gangi leiksins en lokatölur urðu 1:1. Eyjamenn voru mun sterkari, ekki síst eftir að fyrirliða Valsmanna var vikið af velli þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Ajay Leitch-Smith skoraði nánast á sömu mínútu og kom ÍBV yfir en Valsmenn fengu […]
Stelpurnar gerðu jafntefli gegn FH

Eyjastúlkur léku gegn FH í undanúrslitum 1. deildar í dag en leikurinn fór fram í Kaplakrika. Liðin mætast í tveimur viðureignum, heima og heiman og sigurvegarinn vinnur sér sæti í úrvalsdeild að ári. Þetta var fyrri leikur liðanna og lokatölur urðu 0:0 jafntefli. Síðari leikur liðanna verður á Hásteinsvelli á miðvikudaginn og hefst klukkan 17.30. […]
Stór dagur hjá knattspyrnuliðum Eyjanna

Það er óhætt að segja að dagurinn í dag, laugardagurinn 29. ágúst, sé stór í knattspyrnusumri Eyjamanna. Öll þrjú meistaraflokkslið Eyjanna leika afar mikilvæga leiki. Karlalið ÍBV tekur á móti Val á Hásteinsvelli klukkan 16.00, kvennalið ÍBV leikur gegn FH á útivelli í undanúrslitum 1. deildar kl. 14.00 og KFS sækir Hvíta riddarann heim í […]
Icesafe og golfmót

Var að koma úr golfmóti Íslandsbanka hér í Eyjum. Frábært mót og þó ég sé örugglega orðinn þvöglumæltur eftir tvö” rauðvínsglös þá heyrist það ekki á mér. Það sést kannski…Ég varð í dag skuldsettari en ég hef nokkru sinni verið. Til hamingju með það. Öll erum við orðin svo skuldug að tæknilega séð er örugglega […]
Gordon hættir ekki að tala um lundann

Breski sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsay virðist hafa orðið hugfanginn af dvöl sinni í Vestmanneyjum og ekkert síður af hinum íslenska lunda. Hann getur hreinlega ekki hætt að tala um fuglinn og eyjarnar í erlendum fjölmiðlum. Ramsay var þannig í viðtali við spjallþáttastjórnandann Jimmy Kimmel og ræddi þar um hvernig hann hefði veitt lundann, rifið úr honum […]
Hermann ekki með gegn City

Landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson hefur enn ekki jafnað sig af meiðslum í læri og hann mun því ekki leika með Portsmouth á sunnudaginn þegar liðið tekur á móti Manchester City á Fratton Park. Hermanns hefur verið sárt saknað í liði Portsmouth en hann hefur verið fjarri góðu gamni í öllum þremur leikjum þess í úrvalsdeildinni en […]
Sló þeim allra stærstu við

„Ég var náttúrulega ekki með mynd um ljón eða fíla þannig að ég var ekki alveg viss um að ég væri á réttum vettvangi. En svo var henni svona gríðarlega vel tekið,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Páll Steingrímsson sem vann til verðlauna á Japan Wild Life Film Festival fyrir kvikmynd sína Undur vatnsins. (meira…)
Vaxið mjög hratt síðustu tvö til þrjú árin

Það hefur ekki farið fram hjá nokkrum Eyjamanni og gestum sem hafa sótt Eyjarnar heim að miðbærinn hefur tekið stórstígum framförum. Það eru ekki bara að rísa ný hús heldur hefur gatnakerfið tekið stakkaskiptum þar sem mikil vinna hefur verið lögð í hellulögn og lagningu kantsteina. Allt er þetta vel af hendi leyst og allt […]
Siglir ekki, fari ölduhæð yfir 3,5 metra við Surtsey

Herjólfur fer í slipp á Akureyri eftir tvær vikur og gert er ráð fyrir að hann verði í burtu í tvær vikur. Breiðafjarðarferjan Baldur leysir Herjólf af þennan tíma. Þær upplýsingar fengust hjá Guðmundi Pedersen hjá Eimskip að stefnt hafi verið á að Herjólfur færi í slippinn 13. september en það gæti dregist um tvo […]
Fyrsta pysjan komin í hús

Fyrsta pysjan er komin í hús þetta haustið en mæðginin Jón Halldór Kristínarson og Kristín Harpa Halldórsdóttir björguðu hennir úr klóm kattar í gærkvöldi. Pysjuna sáu þau fyrir utan heimili sitt í Foldahrauni og voru ekki lengi að ná henni. Í næsta nágrenni beið nágrannakötturinn eftir færi, sem hann fékk ekki. (meira…)
�?urfum bara að spila okkar leik

Í dag klukkan 17.00 leikur kvennalandslið Íslands annan leik sinn í riðlakeppni EM í Finnlandi en leikið verður gegn Noregi. Fyrirfram er búist við jöfnum og spennandi leik en Ísland lagði Noreg fyrr á þessu ári á æfingamóti á Algarve 3:1. Ekkert nema sigur heldur voninni lifandi um að komast í milliriðil hjá Íslandi. (meira…)
Golfmót fyrir krakka 13 ára og yngri

Nú líður að lokum golfvertíðarinnar en þó eru enn nokkur golfmót eftir hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. Á sunnudaginn verður síðasta krakka- og unglingagolfmótið haldið, svokallað Skipalyftugolfmót og er mótið ætlað kylfingum 13 ára og yngri. Keppt verður í þremur flokkum, 11 ára og yngri og 12 til 13 ára hjá strákunum og svo verður sérstakur telpnaflokkur. […]
Skál!

Hver man ekki eftir umræðunni um hið nýja Ísland. Þannig fengum við sögulega endurnýjun á Alþingi. Nýr flokkur fékk brautargengi og nýjir frambjóðendur teknir alvarlega.Við áttum að vera laus við dekstrið við auðvaldið. Tenginguna á milli fjármagns og stjórnmála. Stjórnmálamenn áttu að axla ábyrgð á gjörðum sínum… (meira…)
Deildin.is með fréttir af enska boltanum

Hallgrímur Helgi Hallgrímsson og Birkir Ágústsson hafa í samstarfi við þrjá félaga sína sett upp nýja vefsíðu þar sem reglulega eru settar inn ferskar fréttir um allt sem viðkemur enska fótboltanum. Þeir hafa svo fengið til liðs við sig fimm aðra fótboltaáhugamenn þannig að tíu manns koma að því að skrifa fréttir á vefinn sem […]
Tvö prósent atvinnuleysi í Eyjum en átta prósent á landinu öllu

Vilborg Þorsteinsdóttir hjá Vinnumálastofnun í Vestmannaeyjum sagði ekki hægt að segja að staðan í atvinnumálum í Vestmannaeyjum sé slæm því atvinnuleysi hér er um tvö prósent en var átta prósent á landinu öllu í júlí. (meira…)
Fyrsta tap ÍBV í tvo mánuði

Eyjamenn töpuðu fyrsta leik sínum í kvöld síðan 1. júlí eða nákvæmlega í tvo mánuði, þegar þeir sóttu KR-inga heim. Lokatölur urðu 3:0 en öll mörkin voru skoruð í síðari hálfleik. Fram að þessu höfðu Eyjamenn leikið sex leiki í röð án þess að tapa, þar af unnið síðustu fjóra leiki. (meira…)
Slipptöku Herjólfs frestað um viku

Slippsferð Herjólfs frestast um eina viku frá því sem áður var áætlað. Herjólfur fer í slipp 13. september og kemur aftur í áætlun 25. september. Þá mun skipið sigla frá Þorlákshöfn klukkan 12.00. Breiðafjarðaferjan Baldur leysir Herjólf af á meðan slipptöku stendur. Áætlun verður óbreytt að öðru leyti en því að Baldur fer frá Vestmannaeyjum […]
Leiknum lýst á netinu

Í kvöld verður bein lýsing frá leik KR og ÍBV og hefst útsendingin á netinu kl 17:45. Það er Sverrir Júll sem mun lýsa leiknum beint. Þetta hefur verið gert nokkrum sinnum í sumar og hafa stuðningsmenn víðsvegar um heiminn haft gaman að. Hægt verður að hlusta á eftirfarandi stöðum. www.sportid.is, www.ibvfan.is, www.ibvfan.blog.is. (meira…)
BBC vill mynda pysjur

Kvikmyndatökumenn á vegum BBC verða í Eyjum um helgina en þeir hafa mikinn áhuga á að mynda pysjur ef þær verða á ferðinni. Kristján Egilsson á Náttúrugripasafninu hvetur krakka sem finna pysjur til að koma með þær á safnið því þar er hægt að geyma þær og eins er mikilvægt að vigta þær og mæla. […]
Sýnir bæði styrk og sveigjanleika félagsins

Hagnaður varð af rekstri Vinnslustöðvarinnar að fjárhæð 2,9 milljónir evra, jafnvirði 530 milljóna króna á fyrri hluta ársins. Á sama tímabili í fyrra var rúmlega 3,4 milljóna evra hagnaður af rekstri félagsins. Heildartekjur félagsins voru 25 milljónir evra og drógust saman um 7,7 milljónir evra frá sama tímabili á fyrra ári eða um 23,5%. Sigurgeir […]