Eyjastúlkur ekki upp

ÍBV missti rétt í þessu af sæti í úrvalsdeild en liðið tók á móti FH í undanúrslitum 1. deildar. Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli og staðan var ansi góð fyrir ÍBV í upphafi síðari hálfleiks því Eyjastúlkur voru yfir 2:0. En FH-ingar skoruðu tvö mörk og kom jöfnunarmarkið á 93. mínútu. FH fer […]
Verður hrein martröð

Nýtt fiskveiðiár hófst á þriðjudaginn, 1. september. Að baki er mjög gott ár en ljóst er að niðurskurður í ýsu og ufsa mun hafa áhrif í Vestmannaeyjum. Einnig er óvissa um veiðar á síld og loðnu þar sem Eyjamenn eru sterkir. Þórður Rafn Sigurðsson, útgerðarmaður og formaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja, er ánægður með síðasta fiskveiðiár en […]
Vilja sameina félagsstarf í nýrri félagsmiðstöð

Vinnuhópur sem skipaður var til að endurskoða tómstundastarf í Vestmannaeyjum hefur skilað tillögu þess efnis að félagsmiðstöðvarnar Féló og Volbúð verði lagðar niður og ný félags- og æskulýðsmiðstöð stofnuð undir nafninu Rauðagerði, frístundahús. Samkvæmt tillögunni á nýja miðstöðin að halda utan um allt félagsstarf á vegum Vestmannaeyjabæjar fyrir aldurshópana 13-16 ára, 16-25 ára og eldri […]
Sálin tryllir lýðinn á laugardaginn

Á laugardaginn (5 sept) halda Sálverjar til Vestmannaeyja. Verður þar um kvöldið slegið upp rokktjöldum og mögnurum í Höllinni, hinu myndarlega skemmtihúsi Eyjamanna. En laugardagurinn verður einnig merkur fyrir þá staðreynd, að þann dag mun Eyja-pæjan Laufey Jörgensdóttir, ein af dyggustu áhangendum Sálarinnar í gegnum tíðina, ganga í það heilaga með unnusta sínum, Jónasi Þór […]
Lundastofninn kominn að fótum fram

Útlit með afkomu lundastofnsins í Vestmannaeyjum er jafnvel verra nú en í fyrra og virðist afkomubrestur blasa við enn eitt árið í röð. Lítið sem ekkert hefur verið um að lundapysjur, eða ungar lundanna, fljúgi niður í bæinn og verði þar bjargarlausar þar til börn og unglingar bjarga þeim, eins og verið hefur iðja krakkanna […]
Ná Eyjastúlkur að komast upp í úrvalsdeild?

ÍBV og FH mætast í dag klukkan 17.30 á Hásteinsvellinum í síðari leik liðanna í undanúrslitum 1. deildar kvenna í knattspyrnu. Liðin skildu jöfn í fyrri viðureigninni í Hafnarfirði 0:0 en það lið sem hefur betur, tryggir sér sæti í úrvalsdeild að ári. Það er því allt undir í dag og ættu stuðningsmenn ÍBV ekki […]
Of lítið vægi landsbyggðarinnar

Höfuðborgarsvæðið hefur nú 35 þingsæti en ætti að hafa 42 sé miðað við jafnt vægi atkvæða í einstökum kjördæmum. Líklega myndi það ekki hafa nein afgerandi áhrif fyrir landsbyggðina þótt þingmönnum þaðan fækkaði um 7. Aðalatriðið er að höfuðborgarsvæðið hefur þegar rúman meirihluta þingsæta og í krafti þess hafa í síðustu ríkisstjórnum að mestu setið […]
KFS úr leik

KFS féll óvænt úr leik í 8-liða úrslitum í kvöld þegar liðið tók á móti Hvíta riddaranum á Hásteinsvellinum. Eyjamenn höfðu unnið fyrri leikinn 3:1 og fæstir áttu von á öðru en að sigursælasta lið Íslandsmótsins í ár myndi tapa sínum fyrsta leik í mótinu í kvöld. Hvíti riddarinn komst fjórum mörkum yfir en lokamínúturnar […]
Er flug eða er ófært?

Nú þegar allir eru að einbeita sér að því að bíða eftir Bakkafjöruhöfn – hvað er þá að gerast á öðrum vígstöðvum? Hvað er að frétta af innanlandsfluginu? Það hefur nú verið fín drift í því í sumar sýnist mér, er alveg viss um að það er góð farþegaaukning þetta árið – þið leiðréttið mig […]
Mawejje ekki á leiðinni burt?

Svo gæti farið að úganski leikmaðurinn Tonny Mawejje, sem var á leiðinni frá ÍBV á sunnudaginn, klári tímabilið með Eyjamönnum. Eftir því sem næst verður komist hefur reglum í Úganda verið breytt þannig að félagsskiptaglugginn lokaði ekki 1. september eins og áður var, heldur fyrr og því bendir allt til þess að Mawejje geti hreinlega […]
Rifist um vítaspyrnuna í Pepsímörkunum

Það átti sér afar athyglisverð umræða í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sporti í gærkvöldi um hvort að það hafi verið réttur dómur að dæma víti á ÍBV í leik liðsins gegn Val á laugardag. Þeir Hörður Magnússon, þáttarstjórnandi, og Magnús Gylfason, sérfræðingar, voru ekki á sama máli um hvort að vítadómurinn hafi verið réttur. (meira…)
Róleg vika að baki hjá lögreglu

Mjög rólegt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. viku. Þó voru ýmis verkefni sem lögreglan þurfti að sinna. Um síðastliðnu helgi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmála í heimahúsi. Lögreglumenn fóru á staðinn en þá voru slagmálin yfirstaðin og ekki þörf á aðstoð lögreglu. Einnig var kvartað yfir ónæði frá gleðskap. Húsráðendur lofuðu að […]
KFS getur tryggt sér sæti í undanúrslitum í dag

Í dag, klukkan 17.30 tekur KFS á móti Hvíta riddaranum í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum 3. deildar. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli en fyrri leik liðanna lauk með glæsilegum útisigri KFS 1:3. Eyjamönnum dugir því jafntefli eða sigur til að komast áfram og mega jafnvel tapa leiknum með einu marki. Það er hins […]
Nýtt fiskveiðiár á miðnætti

Nýtt fiskveiðiár hófst á miðnætti í skugga mikils niðurskurðar á kvótum mikilvægra tegunda. Mestu munar að ýsukvótinn á þessu fiskveiðiári verður heilum 30 þúsund tonnum minni en á síðasta fiskveiðiári, eða aðeins 63 þúsund tonn, samanborið við 93 þúsund tonn á nýliðnu fiskveiðiári. Þetta jafngildir ársafla fimm til sex togara, ef þeir veiddu einungis ýsu. […]
Hópferð á leik Grindavíkur og ÍBV

Næstkomandi fimmtudag verður leikur Grindavíkur og ÍBV og er það einn mikilvægasti leikur Eyjamanna í langan tíma en í þessum leik geta bæði liðin tryggt sér sæti í Pepsídeildinni á næsta ári. Stuðningur við ÍBV er því mikilvægur í leik eins og þessum og við Eyjamenn viljum sjá liðið okkar spila áfram með þeim bestu. […]
Ákveðið að endurbyggja skipalyftuna

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum að ráðast í endurbyggingu upptökumannvirkja í Vestmannaeyjahöfn en tæp þrjú ár eru liðin síðan skipalyftan hrundi. Samkvæmt kostnaðaráætlun er heildarkostnaður við verkið áætlaður um 250 milljónir miðað við gengi Bandaríkjadollars í dag. Samþykkt var að ráðast í endurbyggingu upptökumannvirkja og taka upp viðræður við bæjaryfirvöld um fjármögnun […]
Skelfilegt að missa þá

„Það er auðvitað bara alveg skelfilegt ef það er raunin að þessir þrír lykilleikmenn séu á förum frá okkur núna,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu í Vestmannaeyjum í samtali við Morgunblaðið í gær. Allt útlit er fyrir að Eyjamenn missi þá Ajay Leitch-Smith, Christopher Clements og Tonny Mawejje. (meira…)
Lokað vegna viðgerðar frá sunnudegi til fimmtudags

Kæru viðskiptavinir Lokað verður hjá okkur frá og með deginum í dag (sunnudag) og til hádegis á fimmtudag (3. sept) vegna viðgerða á gólfi staðarins. Opnum aftur fimmtudaginn 3 sept með okkar víðfrægu Humarsúpu ala VolcanoCafé á tilboði í hádeginu. (meira…)
Erlendu blaðamennirnir aðgangsharðir við Margréti Láru

Erlendu blaðamennirnir sem voru mættir á blaðamannafund fyrir leik Íslands og Þýskalands í gær höfðu mun meiri áhuga á að tala við Margréti Láru Viðarsdóttur en landsliðsþjálfarann og Eddu Garðarsdóttur sem voru einnig á fundinum. (meira…)
Klárlega rangur dómur hjá Magnúsi

Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV vandaði dómara leiksins, Magnúsi Þórissyni ekki kveðjurnar í leikslok enda var hann afar ósáttur við vítaspyrnudóminn. „ Maðurinn er með hendurnar niður með síðum, með þær eins nálægt líkamanum og hann getur og Valsarinn stendur metra frá honum. Ég veit ekki hvað maðurinn á að gera við hendurnar. Þetta er klárlega […]