Ekki formleg tillaga heldur innlegg í umræðuna

Forsvarsmenn Skipalyftunnar höfðu samband við ritstjórn Eyjafrétta.is vegna fréttar um málefni nýrrar skipalyftu sem birtist á vefnum í gær og var tekin af forsíðu Frétta. Þeir vildu koma eftirfarandi á framfæri. (meira…)
Spánarsnigill kominn til Eyja

Spánarsnigill er kominn til Vestmannaeyja en hann nam land á Íslandi árið 2003. Spánarsnigillinn er enginn aufúsugestur því hann er hinn mesti skaðvaldur á gróðri, stór og gráðugur. Kristján Egilsson, forstöðumaður Náttúrugripasafnsins, sagði að snigillinn hefði fundist á sólpalli við hús við Heiðarveg. (meira…)
Bærinn til í stærri lyftu

Í síðustu viku funduðu fulltrúar bæjarins með hagsmunaaðilum vegna endurbyggingar upptökumannvirkja við Skipalyftuna. Seinni fundurinn var með þjónustuaðilum en þrjár hugmyndir eru uppi um stærð lyftunnar og er áætlaður kostnaður við þær frá 250 milljónum upp í 600 milljónir. Dýrari kostirnir þýða stærri lyftu sem gæti tekið upp stærri skip. (meira…)
Svona er Breiðafjarðaferjan Baldur

Næsta mánudag mun Breiðafjarðaferjan Baldur leysa Herjólf af hólmi í siglingum milli lands og Eyja en Herjólfur er á leið í slipp þar sem meðal annars á að laga annan af tveimur veltiuggum skipsins sem skemmdist fyrir tæpu ári síðan. Baldur siglir í Breiðafirði, milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Skipið er 1370 […]
Síldarkvótinn að klárast

Veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum fer senn að ljúka þar sem skipin eru um það bil að klára kvóta sína. Einhver eru þegar búin, önnur í síðustu veiðiferð og nokkur eiga eitthvað meira eftir. Engin verkefni blasa við skipunum í bráð, að lokinni síldarvertíðinni, því líklega verða engar haustveiðar úr íslenska sumargots-síldarstofninum vegna sýkingar í stofninum […]
Erfiður rekstur Sparisjóðs Vestmannaeyja á fyrri hluta árs

Stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja hefur staðfest árshlutareikning sjóðsins fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2009. Helstu niðurstöður rekstrarreiknings eru: Hreinar vaxtatekjur eru 205,5 mkr., hreinar þjónustutekjur eru 46,7 mkr. og aðrar tekjur eru 40,1 mkr. Hreinar rekstrartekjur eru samtals 292,3 mkr. Almennur rekstrarkostnaður með afskriftum er 197,2 mkr. Virðisrýrnun eigna reiknast 91,7 mkr. Hagnaður fyrir […]
Hermann þriðji besti leikmaður íslenska liðsins

Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson er þriðji besti leikmaður íslenska landsliðsins í undankeppni HM. Bestur var markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson og næstbestur Kristján Örn Sigurðsson, félagi Hermanns í hjarta varnarinnar. Fréttablaðið kemst að þessari niðurstöðu miðað við einkunnargjöf blaðsins. (meira…)
�?r flugumferðarstjórn í upplýsingaþjónustu

Þann 24. ágúst var flugumferðarstjórn aflögð af í flugturninum í Vestmannaeyjum, fór úr því vera flugumferðarstjórn í það að vera flugupplýsingaþjónusta. Sex starfsmenn sjá um flugupplýsingaþjónustuna þar af er einn menntaður flugumferðarstjóri. Tveir af þremur flugumferðarstjórum sem störfuðu áður við Vestmannaeyjaflugvöll hafa ráðið sig sem flugumferðarstjórar í Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli. (meira…)
Enn og aftur á leið í land með vænan vinnsluskammt

Það gekk vel að fá vinnsluskammtinn í þessum túr eins og oft áður. Við tókum á þriðja sólahring í að toga troll þeirra á Guðmundi VE 29, eða þrjú höl með tilheyrandi pásum á milli. Svo höfðum við það bara gott saman á djúpu vatni, horfðum á landsleiki karla og kvenna til skiptis. Já góður […]
Par fékk næturgistingu hjá lögreglunni

Ein líkamsárás hefur verið kærð eftir skemmtanahald helgarinnar en hún átti sér stað á Strembugötu aðfaranótt 6. september. Þar slógust tveir menn sem voru á heimleið eftir að hafa verið að skemmta sér í Höllinni en sparkað var í höfuð annars mannsins. Árásarmaðurinn var í kjölfarið handtekinn og sömuleiðis kona sem var í fylgd með […]
Allir hvattir til að mæta, karlar og konur

Styrktargangan, Göngum saman, verður í Vestmannaeyjum, á sunnudaginn og verður boðið upp á þrjár vegalengdir. Þátttökugjald rennur óskipt til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Það eru Ólöf Jóhannsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir og Sigurlína Guðjónsdóttir sem standa fyrir styrktargöngunni í Vestmannaeyjum og verður lagt upp frá Tvistinum klukkan 14.00 á sunnudaginn. (meira…)
Kaninn verður í loftinu í Eyjum í næstu viku á 104,7

Útvarpsstöðin Kaninn, sem Einar Bárðarson stendur að, fór í loftið um síðustu mánaðamót. Aðsetur stöðvarinnar er á Keflavíkurflugvelli, eins og forveri hennar. Hægt er að ná útsendingum stöðvarinnar á internetinu, kaninn.is. Ætlunin er að í næstu viku verði hún komin í loftið í Eyjum á tíðninni 104,7. Tveir Eyjamenn eiga aðkomu að stöðinni, Sighvatur Jónsson […]
�?rslitakeppni 4. flokks drenga í Eyjum um helgina
Úrslitakeppni hjá 4.flokki drengja fer fram hér í Eyjum um helgina. Drengirnir leika í dag, föstudag, kl. 17.00 gegn Leikni úr Breiðholti. Á morgun, laugardag, leika þeir kl.12.00 gegn Þrótti og á sunnudag kl. 12.00 gegn Breiðablik. Allir leikir IBV fara fram á Þórsvelli. (meira…)
Enn hefur ekkert svínaflensutilfell verið staðfest í Eyjum

Í morgun var símafundur almannavarnadeildar og sóttvarnalæknis með sóttvarnalæknum og lögreglustjórum um land allt þar sem fjallað var um stöðuna í inflúensumálinu, einkum um framkvæmd bólusetningar næstu mánuði. Alls hafa 173 af svínaflensu verið staðfest á Íslandi, með sýnatöku. Ekkert tilfelli hefur enn verið staðfest í Eyjum. (meira…)
Heimilt að óska eftir endurupptöku

Heilbrigðisnefnd Suðurlands fundaði þann 20. ágúst. Lagður var fram úrskurður úrskurðarnefndar um hollustuhætti og mengunarvarnir, dags. 15. júní sl. þar sem kæru Friðbjörns Ó. Valtýssonar á ákvörðun Heilbrigðisnefndar Suðurlands um útgáfu starfsleyfis til handa Höllinni – Millet ehf. var vísað frá. (meira…)
Viðbragðsáætlun vegna svínaflensu

Almannavarnadeild Vestmannaeyja vinnur nú að gerð viðbragðsáætlunar fyrir hugsanlegan heimsfaraldur inflúensu. Slíkar áætlanir eru nú í vinnslu við öll sóttvarnarumdæmi landsins undir stjórn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. (meira…)
Eyjamenn óheppnir að ná aðeins jafntefli

Karlalið ÍBV gerði í dag jafntefli við Grindavík á Grindavíkurvelli. Eyjamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og hefðu átt að skora fleiri en eitt mark fyrsta hálftímann. Það gerðist hins vegar ekki, aðeins Augustine Nsumba tókst að koma boltanum í netið. Grindvíkingar jöfnuðu svo metin á 42. mínútu og þar við sat, lokatölur 1:1 jafntefli. […]
Skip í Vestmannaeyjum með 11% af úthlutuðum aflaheimildum

Heildarúthlutun fiskveiðiheimilda á skip sem skráð eru í Vestmannaeyjum er um 11% af heildarúthlutun fiskveiðiheimilda. Úthlutun á skip sem skráð eru í Reykavík er um 14% alls kvótans og er höfuðborgin því stærsta kvótahöfn landsins. Af einstökum fyrirtækjum í Eyjum er Vinnslustöðin með 10. mesta kvóta útgerðarfyrirtækja landsins með 10.241 þorskígildistonn eða 3.94%. (meira…)
Miðað við lyftu sem getur tekið stærstu togskipin

Í fyrradag hélt framkvæmda- og hafnarráð fund með fulltrúum útvegsbænda í Eyjum vegna endurbyggingar upptökumannvirkja hafnarinnar sem legið hafa ónotuð í tæp þrjú ár eftir þau eyðilögðust í slysi haustið 2006. Framkvæmda- og hafnarráð samþykkti á fundi sínum 26. ágúst sl. að ráðast í verkið og er reiknað með að kostnaður við verkið verði um […]
�?tla sér sigur gegn Grindavík

Karlalið ÍBV er enn í fallhættu, liðið leikur mikilvægan leik gegn Grindavík í kvöld suður með sjó. Leiknum var frestað fyrr í sumar vegna svínaflensu Grindvíkinga. Staðan í fallbaráttunni er að ÍBV og Grindavík eru jöfn með 21 stig, Fjölnir er í fallsæti með 14 stig og Þróttur er neðst með 12. Vinni Fjölnir síðustu […]