Allir vilja á �?jóðhátíð

Dömurnar hjá Flytjanda við Sundahöfn eiga í nægu að snúast þessa stundina. Flytjandi er að selja ósóttar pantanir með Herjólfi til Vestmannaeyja um Verslunarmannahelgina. „Það var byrjað að bíða hérna klukkan hálf sex, en það er eitthvað farið að minnka núna, segir ein stúlkan í þjónustuverinu og segir að miðunum sé eitthvað farið að fækka.” […]

Ljósmyndamaraþon í Nýheimum á Höfn

Ljósmyndir frá ljósmyndamaraþoni sem fór fram á Humarhátíð á Höfn í Hornafirði um nýliðna helgi verða áfram sýndar í Nýheimum út vikuna. Keppendur þurftu að skila af sér 10 myndum um mismunandi þemu og fengu til þess ákveðinn tíma. (meira…)

Hafa beðið síðan þrjú í nótt eftir miða á �?jóðhátíð

Örtröð er nú við afgreiðslu Flytjanda við Klettagarða í Sundahöfn í Reykjavík þar sem hátt í þrjú hundruð unglingar hafa verið að safnast saman í nótt til að tryggja sér síðustu miðana í Herjólf til Vestmannaeyja um þjóðhátíðina. Miðarnir eru seldir þar og byrjuðu unglingar að safnast þar saman um klukkan þrjú í nótt. (meira…)

Göngustígar endurbættir á Selfossi

Ræktunarsamband Flóa og Skeiða vinnur nú að endurbótum á göngustígum í Árborg í kjölfar útboðs á verkinu fyrr í sumar. Í byrjun vikunnar hófst vinna við endurbætur á svonefndum Rimastíg, sem liggur frá Langholti að Norðurhólum og miðar verkinu vel. (meira…)

Rauðhetta og félagar á Stakkó

Næstkomandi sunnudag mun Leikhópurinn Lotta sýna nýjustu upp­færslu sína, Rauðhettu, á Stakkó. Sýningin hefst klukkan 13.00. Sjóvá gefur við­skipta­­­vinum sínum í Stofni tvo miða fyrir börn á sýninguna. Leiksýningin fer fram utandyra og verða áhorfendur því að klæða sig eftir veðri og taka jafnvel með sér teppi ef kalt er í veðri. (meira…)

Leikskólakrakkarnir fóru �?út�? að borða

Í dag sameinuðust börnin á leikskólunum Kirkjugerði og Sóla á fyrrnefnda leikskólanum. Nú styttist í að starfsmenn og nemendur fari í sumarfrí og hefur sú hefð skapast hjá skólunum tveimur, að nemendur borði saman úti á þessum degi ár hvert. Veðrið lék við Eyjamenn í dag og því ekki leiðinlegt að sporðrenna pylsu og skola […]

Makrílveiðar stöðvaðar

Eftir eina klukkustund verða makrílveiðar bannaðar í íslenskri lögsögu samkvæmt ákvörðun Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þá verða veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum aðeins leyfilegar norðan 66°N og þar má makrílafli ekki fara yfir 10% af heildarafla á hverju þriggja vikna tímabili. Þessi reglugerðarbreyting tekur gildi á miðnætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu en […]

Björgunarfélagið heimsótti nágranna sína á Suðurlandi

Í gær fór Björgunarfélag Vestmannaeyja í heimsókn til félaga sinna á Suðurlandi en sveitir frá Hvolsvelli, Hellu, Vík og úr Landeyjunum tóku á móti Eyjamönnum í Landeyjahöfn. Siglt var á björgunarbátnum Þór og fengu félagsmenn nágrannafélaganna að fara í stutta siglingu með bátnum. Óskar Pétur Friðriksson var með í för og myndaði ferðina í bak […]

Enn sýking í síldinni

Aftur finnst nú töluvert af sýktri síld í íslensku sumargotssíldinni, en sýkingarinnar varð fyrst vart í fyrrasumar og voru vonir bundnar við að hún gengi yfir í vetur. Sú er hins vegar ekki raunin samkvæmt upplýsingum úr síldarleiðangri hafrannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar sem nú er að kanna ástand síldarinnar suður af landinu. (meira…)

Sofandi og hálfnaktar

Við komum ekki nógu vel stemmdar í seinni hálfleik og við vorum hreinlega sofandi og það sást í lok fyrri hálfleiks þegar þær áttu stórsókn á okkur og tvö skot í slá og við vorum ekki nógu vel á verðinum.sagði Þórhildur Ólafsdóttir 2009-07-08 08:17:00 (meira…)

Eimskip dæmt til að greiða 700 þúsund eftir fall farþega í Herjólfi

Eimskipafélag Íslands var á dögunum dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða Kjartani Guðfinnssyni 700 þúsund krónur eftir að Kjartan rann til í bleytu á klefagangi Herjólfs, sem Eimskip rekur. Kjartan, sem gekk við hækju áður en slysið varð, var á leið út úr lyftu skipsins á fjórðu hæð þegar hækjan rann til með þeim […]

�?Best væri ef þessir sóðar yrðu staðnir að verki�?

Guðmundur Þ. B. Ólafsson, forstöðumaður Áhaldahússins sendi Eyjafréttum þessar myndir af ótrúlegri umgengni á nýja hrauninu. Við útsýninspallinn sem er gengt Ystakletti, hefur rusli verið kastað niður í hraunið. Ekki er um það að ræða að ökumaður hafi tæmt öskubakka bifreiðar því þarna er að finna heilu plastpokana af rusli, rafgeymi og jólaskraut. (meira…)

ÍBV mætir Fylki í kvöld

Kvennalið ÍBV mætir í kvöld úrvalsdeildarliði Fylkis í átta liða úrslitum VISA bikars kvenna. ÍBV spilar sem kunnugt er í 1. deild en hefur þó slegið út tvö úrvalsdeildarlið á leið sinn í átta liða úrslit, GRV og Aftureldingu/Fjölni. Fylkir er þó með betra lið en bæði þessi lið og verður því vafalaust um erfiðan […]

KFS með stórsigur á �?rótti Vogum

KFS vann stórsigur í kvöld á Þrótti Vogum þegar liðin áttust við á Þórsvelli í Vestmannaeyjum. Liðin leika í B-riðli 3. deildar en fyrsti leikur liðanna endaði með 2:4 sigri KFS. Lokatölur í kvöld urðu hins vegar 5:0 fyrir KFS en leikurinn var þó jafnari en lokatölurnar gefa til kynna. Staðan í hálfleik var 2:0. […]

Fjör í Skvísusundi

Hápunkti Goslokahátíðarinnar var náð með fjöri í Skvísusundi aðfaranótt sunnudagsins. Mikill fjöldi fólks sótti hátíðina í Eyjum og komu langflestir þeirra saman í Skvísusundinu þessa nótt. Þá eru krær sundsins opnaðar og heimamenn skemmta sjálfum sér og gestum með söng og gleði. Ljósmyndarar Eyjafrétta.is voru að sjálfsögðu á staðnum og hér að neðan má sjá […]

Breyting á áætlun Herjólfs í dag

Breyting hefur verið gerð á áætlun Herjólfs í dag. Skipið leggur af stað frá Þorlákshöfn klukkan 16.00 og frá Vestmannaeyjum klukkan 20.00. Seinni brottför frá Þorlákshöfn verður því um miðnætti. (meira…)

Töluverður erill hjá lögreglu um helgina

Töluverður erill var hjá lögreglu í vikunni sem leið og um helgin enda fjöldi fólks í bænum í tengslum við Goslokahátíð. Lögreglan hafði í nógu að snúast um helgina við að aðstoða fólk til sína heima enda var töluverð ölvun í bænum. Þá var nokkrum ungmennum vísað út af veitingastöðum bæjarins en þau höfðu ekki […]

Áætlun Herjólfs í dag

Eins og áður hefur komið fram siglir Herjólfur á annarri af tveimur vélum þessa dagana en unnið er að viðgerðum á hinni aðalvél skipsins. Fyrir vikið riðlast áætlun Herjólfs talsvert en tímasetning liggur fyrir á ferðum skipsins í dag. Herjólfur lagði af stað frá Eyjum nú klukkan 11.00 og fer frá Þorlákshöfn klukkan 15.00. (meira…)

KFS tekur á móti �?rótti Vogum í kvöld

KFS tekur á móti Þrótti Vogum í dag en leikur liðanna átti upphaflega að fara fram á laugardaginn. Þá var honum hins vegar frestað vegna veðurs. Á vef KSÍ er leikurinn auglýstur klukkan 16.00 í dag en Trausti Hjaltason, aðstoðarþjálfari félagsins hafði samband og sagði að leikurinn færi fram klukkan 20.00 á Þórsvelli. Leiðréttingunni er […]

Lamdi barnsmóður sína í augsýn barnanna

Maður var í dag dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir héraðsdómi Suðurlands, auk 300 þúsund króna skaðabótagreiðslu til barnsmóður sinnar fyrir líkamsárás, hótanir og brot gegn valdstjórninni. Þá þurfti hann að greiða allan sakarkostnað vegna málsins. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.