Heldur á ný á heimaslóð

Sóknarmaðurinn Elías Ingi Árnason hefur ákveðið að halda á heimaslóðir og spila út tímabilið með 1. deildarliði ÍR. Þaðan kom Elías Ingi fyrir tímabilið og var hann markahæsti leikmaður þeirra í fyrra. Hann hefur ekki náð að vinna sér sæti í ÍBV liðinu og hefur því ákveðið að söðla um. (meira…)

Nú fær maður að nýta nýja stýrimannsskírteinið sitt

Eins og flest allir vita þá hafa makrílveiðar verið bannaðar og allar flottrollsveiðar sunnan 66°N. Bannið við veiðunum kom ekkert á óvart en mér fannst fyrirvarinn heldur snubbóttur. Þessar makrílveiðar voru hálfgerður kjánaskapur frá upphafi til enda en þessi kvótasetning hjá vinstri-græna ráðherranum voru fyrstu mistökin sem gerð voru. (meira…)

Er Ísland komið í þrot?

Þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vann áætlanir sínar eftir efnahagshrunið taldi sjóðurinn að þjóðarbúið réði ekki við meiri erlendar skuldir en sem næmi 240% af landsframleiðslu. Ef skuldir væru meiri en það færi Ísland í þrot. Þá taldi AGS að skuldir okkar næmu 160% af landsframleiðslu. Í fréttum Stöðvar 2 í síðustu viku kom fram að erlendar skuldir […]

Er ekkert veður í Vestmannaeyjum?

Ég er að lesa Árbók Ferðafélags Íslands 2009 sem er um Vestmannaeyjar. Höfundur er Guðjón Ármann Eyjólfsson en Ingvar A. Sigurðsson og Sveinn P. Jakobsson skrifa um jarðfræði Eyjanna og Jóhann Óli Hilmarsson um fugla í Vestmannaeyjum. Í jarðfræðikaflanum kemur fram að eftir nýjustu rannsóknum séu norðurklettarnir 40 þúsund ára gamlir eða töluvert eldri en […]

Rólegt hjá lögreglunni í Eyjum

Það var frekar rólegt hjá lögreglu í vikunni sem leið og ekkert alvarlegt sem kom upp. Nokkrar tilkynningar bárust þó lögreglu vegna ölvunar og stympinga en engin eftirmál hafa orðið vegna þeirra. (meira…)

�?rlygur Vestmannaeyjameistari í golfi

Meistaramóti GV lauk í gær. Nokkur spenna var fyrir lokadaginn þar sem Örlygur Helgi átti aðeins 1 högg á Rúnar Karlsson og 2 á Gunnar Geir Gústafsson. Eftir fyrstu holu var staðan orðin jöfn þar sem Rúnar náði fugli. Allt var í járnum þangað til á 13.holu þar sem Rúnar lenti í vandræðum. Munurinn í […]

Fjörugur jafnteflisleikur

Skemmtilegum leik ÍBV og Keflvíkinga lauk með 2-2 jafntefli í gærkvöldi. Það leit hinsvegar ekki vel út fyrir Eyjapeyjana, því eftir 18 mínútur voru Keflvíkingar komnir 2-0 yfir. Svo sem ekki nýtt að ÍBV fái á sig mörk strax í upphafi leiks. En að ná að jafna eftir tíu mínútur sýnir mikinn karakter. (meira…)

Nýtt svið og stærri brekka í Herjólfsdal

Þjóðhátíðarnefnd Vestmannaeyja heldur áfram uppbyggingu á hátíðarsvæðinu í Herjólfsdal til að geta tekið á móti fleiri gestum. Tjaldstæði heimamanna hafa verið endurbætt og framkvæmdir standa yfir við nýtt Brekkusvið. Tengill á sjónvarpsfrétt RÚV fylgir fréttinni. (meira…)

KFS á sigurbraut

KFS mætti í dag liði KB á Helgafellsvelli í þó nokkru hvassviðri sem beindist á annað markið. KB byrjaði á sækja undan vindi og var betri aðillinn í fyrrihálfleik þótt þeir náðu ekki að skapa sér nein virkilega hættuleg færi. KFS komu sterkir inn í seinni hálfleik og skoruðu 2 mörk á fyrstu 7 mínútunum […]

15 milljarða króna lækkun vegna kvótaskerðingar

Útflutningsverðmæti sjávarafurða mun lækka um fimmtán milljarða króna eftir skerðingu á kvóta, að mati útgerðarstjóra Ísfélags Vestmannaeyja. Að hans mati var þörf á því að minnka ýsukvótann en hann telur 30.000 tonna skerðingu vera of stórt stökk. (meira…)

Skjótt skipast veður í lofti

Meistaramót GV tók nokkuð óvænta stefnu eftir 3. keppnisdag. Örlygur Helgi og Karl Haraldsson léku sína verstu hringi á mótinu á meðan Gunnar Geir Gústafsson og Rúnar Þór léku sína bestu. Rúnar og Gunnar Geir léku frábærlega og enduðu á 2 höggum undir pari eða 68. Ölli lék hinsvegar á 75 og Karl á 78. […]

Brettum upp ermar

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram viðamikla þingsályktunartillögu um nauðsynlegar aðgerðir vegna alvarlegs ástands efnahagsmála. Markmið þeirra aðgerða sem lagt er til að Alþingi feli ríkisstjórn að ráðast í er að bæta stöðu heimila og fyrirtækja, endurheimta tiltrú á íslensku efnahagslífi, skapa sameiginlegan skilning á mikilvægi brýnustu aðgerða, tryggja hvata til atvinnusköpunar og hagvaxtar og skapa […]

Nokkrar góðar hugmyndir

Nú er tími sumarleyfanna í algleymingi. Hvert skal halda og hvað skal gera í fríinu. Það fer auðvitað eftir smekk hvers og eins. Hér eru nokkrar góðar hugmyndir til að gera sumarfríið eftirminnilegt. (meira…)

13 ára gutti slær í gegn á Meistaramótinu í golfi

Óhætt er að segja að sá kylfingur sem hefur komist mest á óvar í meistaramótinu sé hinn 13 ára Jón Ingason. Jón er sonur Inga Sigurðssonar fyrrum Vestmannaeyjameistara í golfi. Jonni, eins og hann er kallaður, er í efsta sæti í 2.flokki og væri í 3. sæti í fyrsta flokki á þessu skori. (meira…)

Karl og �?rlygur heyja einvígi

Segja má að meistaramót GV sé að breytast í einvígi tveggja kylfinga. Karl Haraldsson lék annan dag best allra eða á 70 höggum á meðan forystusauðurinn Örlygur Helgi lék á 71 höggi. Munurinn á þeim er núna aðeins 2 högg. 6 högg eru svo í 3. sætið en þar situr, eins og eftir fyrsta dag, […]

Góð veðurspá fyrir helgina

Veðurvakt Einars Sveinbjörnssonar spáir í veðrið um næstu helgi. Spáin er þannig að útkomulaust verði að heita má á landinu um helgina og áfram hægviðrasamt. Sums staðar á landinu virðast vera afar góðir sumardagar í vændum. (meira…)

Herjólfur mátaði nýju innsiglinguna í Land-Eyjahöfn

Þegar Herjólfur fór frá Eyjum í fyrradag, lagði hann lykkju á leið sína og mátaði skipið í innsiglingunni í Land-Eyjahöfn. Sigldi Herjólfur alveg inn í hafnarkjaftinn og að sögn skipstjórnarmanna leist þeim vel á. Dýpið undir skipinu yfir sandrifinu, sem er skammt undan hafnarmynninu var tæpir fjórir metrar. Var þá hálffallið að. (meira…)

Vinkonurnar Fanndís og �?uríður veiddu makríl í Vestmannaeyjahöfn

Svo virðist sem allt sé vaðandi í makríl við Vestmannaeyjar en eins og kunnugt er voru makrílveiðar bannaðar frá og með gærdeginum. Í gær fréttist af stangveiðimönnum sem veiddu makríl rétt austan við Heimaey og í dag litu tvær ungar stúlkur við á ritstjórn Eyjafrétta en þær höfðu báðar veitt makríl í Vestmannaeyjahöfn. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.