34 milljónum útdeilt í verkefni á Suðurlandi

Í gær fór fram úthlutun styrkja frá Menningarráði Suðurlands en afhendingin fór fram í Akógeshúsinu í Vestmannaeyjum. Í ár barst ráðinu 146 umsóknir um styrki upp á 128 milljónir en úthlutað var til 105 aðila, samtals rúmlega 34 milljónum. Við afhendingu styrkjanna var opnaður Sigmundsvefurinn, www.sigmund.is en þar er að finna um tíu þúsund teikningar […]
Verðmætin sem eru í störfunum, kvótanum, atvinnufyrirtækjunum og opinberri þjónustunni hafa verið flutt til höfuðborgarinnar frá landsbyggðinni.

Byggðamálin hafa ekki átt upp á pallborðið síðustu árin. Umræða um stöðu landsbyggðarinnar hefur undanfarin ár horfið í skuggann af öðru sem hefur þótt mikilvægt. Er nokkur maður búinn að gleyma öllum fréttunum í hverjum einasta fréttatíma Reykjavíkurfjölmiðlanna um afrek fjármálafyrirtækjanna innanlands sem erlendis með tilheyrandi þulu um gengi hlutabréfa í hinum og þessum fyrirtækjum? […]
Vinnur föt og skart úr fiskroði og skinni

Sigríður Hrönn Theodórsdóttir frá Vestmannaeyjum tekur þátt í sýningu í galleríinu Tré og list um þessar mundir. Sigríður framleiðir fatnað og skraut úr fiskroði, svína- og kálfarúskinni, gaupu, lambaskinni og selaskinni. Galleríið Tré og list er staðsett að Forsæti III í Flóa, á bökkum Þjórsár, örstutt frá Selfossi. (meira…)
Athyglisverð sjávarútvegsráðstefna

Á morgun föstudag, verður haldin sjávarútvegsráðstefna á vegum Þekkingarseturs Vestmannaeyja í Höllinni. Yfirskrift ráðstefnunnar er Þátttaka atvinnulífsins í rannsóknum og nýsköpun í sjávarútvegi Ráðstefnan hefst kl. 9 og stendur til kl. 16.00. Tilgangur ráðstefnunnar er að leiða saman fulltrúa atvinnulífsins og rannsóknastofnana til að ræða möguleika til frekara samstarfs sem gæti leitt til markvissari vinnubragða […]
Fyrning valdi gjaldþroti útgerða

Öll útgerðarfélög landsins verða orðin gjaldþrota eftir sjö ár verði fyrningarleið ríkisstjórnarflokkanna að veruleika. Þetta segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdarstjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. (meira…)
Stjórnin mætir á Eurovision hátíð í Höllinni

Það verður sannkölluð Eurovision-hátíð í Höllinni Vetmannaeyjum þann 16. maí næstkomandi þegar Stjórnin, þessi eina sanna, ásamt Siggu Beinteins og Grétari Örvars munu sjá stuðið fram á rauða nótt. Auk þeirra mun Tina Turner tribut-band í flutningi Bryndísar Ásmunds og Siggu Beinteins koma fram. (meira…)
ÍBV enn spáð tíunda sæti

Nú fyrir skömmu var opinberuð spá fyrirliða og forráðamanna liða í Pepsí deild karla í knattspyrnu. Samkvæmt henni verða FH-ingar Íslandsmeistarar en Stjarnan og Þróttur falla. ÍBV er spáð tíunda og þriðja neðsta sæti en og virðast knattspekingar vera á einu máli um það enda er þetta þriðja spáin þar sem ÍBV er spáð þessu […]
Hafðist eftir bréfaskriftir og fundi með flugyfirvöldum

Ákveðið er að flugvöllurinn verður opinn til klukkan 11 á kvöldin frá mánudegi til föstudags frá og með 15. maí til 15. ágúst. Þar með er horfið frá því að loka vellinum kl. sjö á kvöldin með tilheyrandi kostnaði og óþægindum. Árni Johnsen, alþingismaður, sagði að þetta hefði fengist í gegn eftir bréfaskriftir og fundi […]
�?hemju þorskgengd

Sjómönnum ber saman um að langt sé síðan önnur eins þorskgengd hafi verið á miðunum kringum landið og nú, sérstaklega við suðurströndina. Skip hafa reynt að flýja þorskinn en sama er hvar reynt er, alls staðar er sama sagan. Vestmannaey VE kom inn á þriðjudag og Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri, sagði að þeir hefðu hreinlega […]
Hætt við sumarlokun á flugvellinum í Eyjum

Flugvöllurinn í Vestmannaeyjum verður opinn til klukkan 23 frá mánudegi til föstudags frá og með 15. maí næstkomandi. Þetta var ákveðið á fundi hjá Flugstoðum ohf. í gær, í kjölfar gagnrýni frá íþróttahreyfingunni í Eyjum um fyrirhugaða styttingu þjónustutíma flugvallarins yfir sumartímann. (meira…)
Mesta úrkoma í Eyjum síðan 1881

Í stuttri greinargerð frá Veðurstofu Íslands kemur fram að nýtt úrkomumet hafi verið sett í Vestmannaeyjum en ekki hefur fallið meiri úrkoma í aprílmánuði síðan mælingar hófust 1881. Sömu sögu er að segja frá Eyrarbakka en þar hefur ekki fallið meiri úrkoma síðan 1881 en mælingar hafa farið þar fram með hléum. Greinargerð Veðurstofunnar má […]
Íþróttabandalag Vestmannaeyja þingar í kvöld

Ársþing Íþróttabandalags Vestmannaeyja verður haldið kvöld kl. 20.00 í Týsheimilinu. Á dagskrá eru hefðbundin þingstörf og er öllum heimil seta á þinginu. Íþóttabandalag Vestmannaeyjar eru einskonar regnhlífarsamtök íþróttahreyfingarinnar í Eyjum og innan þess eru öll íþróttafélög bæjarins. (meira…)
Smjörklípa ráðlausrar ríkisstjórnar

Nú hefur ráðlausa ríkisstjórnin eytt 10 dögum í að ræða um ESB aðild. Skýrt var í kosningabaráttunni að VG og Samfylking eru á öndverðum meiði í málinu. Samstarf flokkanna byggir því augljóslega ekki á málefnasamstöðu. Komandi þing mun að öllum líkindum snúast um þetta mál. (meira…)
Ræktunarsambandið bauð lægst í Hvítarbrú
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða bauð lægst í gerð nýrrar 270 metra langrar brúar yfir Hvítá í Árnessýslu á móts við Flúðir. Óvenju margir verktakar börðust afar hart um verkið og munaði innan við einu prósenti á þremur lægstu tilboðum. (meira…)
Kynningarefni vegna breytinga á mjólkursamningi
Undanfarna daga hefur fjöldi kynningarfunda vegna breytinga á búvörusamningunum verið haldinn víða um land. Á vef Búnaðarasambands Suðurlands kemur fram að fundarsókn hafi verið þokkaleg miðað við árstíma. Einnig hafi viðhorf fundagesta almennt veirð jákvæð. (meira…)
Eyjamenn Íslandsmeistarar

Haukar urðu fyrir stundu Íslandsmeistari í handbolta með því að leggja systurfélag sitt, Val í fjórða leik liðanna á Hliðarenda. Haukar unnu rimmuna um titilinn 3:1 og í leikslok var það Eyjamaðurinn Arnar Pétursson, fyrirliði Hauka, sem tók við Íslandsbikarnum og lyfti honum á loft. Þrír aðrir leikmenn liðsins eru Eyjamenn. (meira…)
Leitin að Sumarstúlkunni að hefjast

Nú er búið að ákveða að Sumarstúlkukeppnin fari fram 19. júní næstkomandi í Höllinni. Auk keppninnar munu Bubbi Morthens og félagar í Ego trylla lýðinn að lokinni keppni á dansleik sem mun standa fram á nótt. Leitin að þátttakendum í Sumarstúlkukeppnina er að hefjast en stelpurnar verða að vera fæddar 1991 eða fyrr. (meira…)
Fyrsta Stúlknameistaramóti Vestmannaeyja í skák í dag

Í dag, þriðjudag verður haldið í fyrsta sinn, Stúlknameistaramót Vestmannaeyja í skák. Mótið hefst klukkan 17.00 í húsakynnum Taflfélags Vestmanneyja við Heiðarveg og eru allar stúlkur velkomnar. Mikil gróska hefur verið í stúlknaskák í Eyjum undanfarið og fjölgar stöðugt þeim stúlkum sem stunda þessa hollu hugaríþrótt. (meira…)
Síðasta prjónakaffið á Volcano Café í kvöld

Í kvöld kl 20:00 ætla Prjónakaffiskonur og -karlar að hittast á Volcano Café og slútta vetrardagskráinni með spjalli og kynningum. það verður væntanlega tekið í nokkra prjóna ef við þekkjum þær rétt. Tilboð á kaffi og með því. (meira…)
Rétt viðbrögð áhafnar komu í veg fyrir að verr færi

Snögg og rétt viðbrögð áhafnar á erlendu lýsisflutningaskipi komu í veg fyrir að verr færi, þegar eldur kom upp í vélarrúmi skipsins þar sem það lá í Vestmannaeyjahöfn í gækvöldi og var að dæla lýsisfarmi um borð. (meira…)