Viðbótarafsláttur af Manchester United vörum

Við viljum minna á að síðasti dagur rýmingarsölunnar er á mánudaginn. Mikill afsláttur. Í framhaldi af úrslitum í enska deildarbikarnum verður 10% viðbótarafsláttur af Manchester United vörum (fer í 60% afslátt). Fyrstir koma fyrstir fá. Fyllsta trúnaðar er gætt gagnvart þeim sem kaupa þær vörur. �?etta er Van-metið og Gaal-ið tilboð. (meira…)
Ég vil ganga minn veg….

Ég hef hitt mikið af fólki sem hefur haft gríðarlega mikil áhrif á líf mitt. Sumir í því hlutverki að vera kennarar og aðrir ekki titlaðir kennarar en reynast mér hinsvegar miklir kennarar í lífinu. Ég er alltaf að sjá það betur og betur hversu dásamlegt lífið er. Sumt af þessu fólki hitti ég aldrei, […]
Íbúalýðræði

Á síðasta kjörtímabili fengu íbúar Vestmannaeyja að segja sitt álit um staðsetningu hótels í Hásteinsgryfjunni. Sett var á laggirnar íbúa-kosning þar sem lang flestir greiddu atkvæði rafrænt. Einhverjir fögnuðu auknu lýðræði á þessum tímapunkti, á meðan aðrir gagnrýndu að kjörnir fulltrúar hafi verið kosnir til að taka ákvarðanir sem þessar og væru með þessu að […]
ÍBV fór illa með Aftureldingu

Kvennalið ÍBV vann í kvöld stórsigur á Aftureldingu 8:0. Staðan í hálfleik var 4:0 en með sigrinum er ÍBV svo gott sem búið að tryggja sér áframhaldandi sæti í úrvalsdeild. ÍBV er nú í 7. sæti með 18 stig en Afturelding er í 9. sæti, fallsæti með 7 stig. 11 stig eru á milli liðanna […]
Fyrrum leikmaður ÍBV fór illa með United

Ein óvæntustu úrslit Deildarbikarkeppninnar í enska fótboltanum litu dagsins ljós í kvöld þegar enska C-deildarliðið fór illa með fyrrum stórlið Manchester United. Liðin áttust við á heimavelli MK Dons og var uppselt eins og gefur að skilja. Lokatölur urðu 4:0 fyrir MK Dons en svo skemmtilega vill til að fyrrum leikmaður ÍBV, George Baldock leikur […]
Lögregla hvetur ökumenn til að fara varlega

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og má þar helst telja nokkur slys sem urðu í umdæminu. Frekar rólegt var í kringum veitingastaði bæjarins um helgina og engin teljandi vandræði sem fylgdi skemmtanahaldinu. Einn ökumaður var stöðvaður af lögreglu vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, auk þess sem […]
Hvað gerir ÍBV á lokasprettinum?

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu tekur á móti Aftureldingu klukkan 18:00 á Hásteinsvelli í dag. Eyjaliðið er í 7. sæti með 15 stig, en Afturelding er í 9. sæti með 7 stig. �?etta er því afar mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Mosfellingar þurfa svo sannarlega á öllum þeim stigum að halda sem mögulegt er að ná […]
Báðir leikirnir í Eyjum

Nú liggur endanlega fyrir að Íslandsmeistarar ÍBV í handbolta munu leika báða leikina gegn ísraelska liðinu Maccabi Rishon Lezion í fyrstu umferð EHF-keppninnar á heimavelli. Ákveðið var í gær að leikirnir fari fram 13. og 14. september að því að fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Vegna átakanna milli Ísraela og Palestíunamanna ákvað EHF (Evrópska […]
Dean í ísfötuáskoruninni

�?eir sem fylgjast með þessa dagana hafa vafalaust tekið eftir svokallaðri ísfötuáskorun en þar er skorað á fólk að láta hella yfir sig klakavatni og styrkja félög þeirra sem eru með MND sjúkdóminn. Dean Edwards, knattspyrnukappi í ÍBV og aðstoðarþjálfari liðsins fékk áskorun og skoraðist auðvitað ekki undan. Hann skoraði jafnframt á Sigurð Ragnar Eyjólfsson, […]
Ný og endurbætt verslun hjá Tölvun

Í dag kl. 13:00, mánudaginn 25. ágúst, opnar Tölvun nýja og endurbætta verslun sína að Strandvegi 51. �?essi glæsilega verslun er stútfull af nýjum vörum og frábærum tilboðum á heimilis- og skólatölvum, ásamt ógrynni af fylgihlutum. Og við keyrum á verði eins og það gerist best í höfuðborginni. Kíktu við, sjón er sögu ríkari! Fréttatilkynning […]