Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók í dag við skýrslu starfshóps sem var falið að kanna fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja. Starfshópurinn kynnti skýrsluna á opnum kynningarfundi í ráðuneytinu fyrr í dag.
Starfshópurinn kemst að þeirri niðurstöðu í skýrslunni að ávinningur af jarðgöngum sé mikill, ekki síst vegna mikils tímasparnaðar vegfarenda og aukinnar umferðar ferðamanna. Hópurinn telur einnig að veggjöld geti staðið undir kostnaði við mannvirkið í heild eða að hluta verði það fjármagnað sem samvinnuverkefni, líkt og var gert með Hvalfjarðargöng. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.
Starfshópurinn leggur til þrepaskipta rannsókn á svæðinu á jarðlögum og hafsbotni á fyrirhugaðri gangaleið áður en unnt er að leggja fram nýtt mat á stofnkostnaði og fýsileika jarðganga. Í hverju þrepi muni bætast við þekking á jarðlögunum og þannig megi taka upplýsta ákvörðun hvort forsvaranlegt sé að ráðast í næstu rannsóknarþrep m.v. fyrirliggjandi rannsóknarniðurstöður hverju sinni.
Þrepin eru fjögur en hvert þeirra gæti tekið um 6-12 mánuði í framkvæmd (áætlaður kostnaður):
Samhliða rannsóknum á jarðlögum leggur starfshópurinn til að gerð verði félagshagfræðileg rannsókn á áhrifum jarðganga á sveitarfélögin, atvinnuumhverfið, ferðamennsku o.fl. til að varpa frekara ljósi á þýðingu þeirra fyrir samfélagið.
Sjá nánar: Jarðgöng: Leggja til þrepaskipta rannsókn
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra segir að það sé gagnlegt að fá skýrsluna í hendur eftir vandaða vinnu starfshópsins. „Þess var ekki að vænta að skýrslan gæfi afdráttarlausa niðurstöðu af eða á en skýrslan útilokar á hinn bóginn heldur ekkert. Ávinningur er slíkur að það er ábyrgðarhluti að gera ekkert. Ég tel að það væri eðlilegt að undirbúa fyrsta þrep rannsóknanna sem starfshópurinn leggur til. Þetta er þó verkefni af því tagi að eðlilegt er að ný ríkisstjórn taki endanlega ákvörðun,“ sagði ráðherra þegar skýrslan hafði verið kynnt.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst