Bítlakvöld á Háloftinu með hinum einu sönnu
Engir tónlistarmenn höfðu meiri áhrif með tónlist sinni en The Beatles frá Liverpool sem skóku heimsbyggðina alla á árunum 1963 til 1970. Vinsældirnar voru ævintýralegar og áhrif þeirra á líf og hugsun unga fólksins á þessum tíma meiri en dæmi voru til. Áhrifin náðu til Vestmannaeyja og gætir enn þó hálf öld sé síðan alda Bítlanna reis hæst. Enn verður blásið í Bítlaglæður á Háaloftinu á föstudagskvöldið þar sem raddir þeirra og tónlist mun hljóma ómenguð. �??Við erum fjórir sem ætlum að troða upp á Bítlakvöldi á Háaloftinu, ég Viðar Togga Lennon, Biggi Nielsen MacCartney, Grétar Eyþórs Starr og Víðir Róberts Harris,�?? sagði Viðar í samtali við Eyjafréttir. Er hann sá eini sem upplifði Bítlatímabilið og enn er hann jafn einlægur aðdáandi. �??Húsið opnar klukkan níu og tónleikarnir byrja klukkan tíu. Við munum flytja 14 lög þar sem raddir Bítlanna allra og undirspil verður í aðalhlutverki. Okkar er að túlka og skila hinum einu sönnu Bítlum til fólksins. Við vonum að sem flestir mæti en það kostar 3000 krónur inn. Gaman væri að fylla salinn en eftir hlé er spurningakeppni þar sem sigurvegarinn fær vegleg verðlaun,�?? sagði Viðar Lennon að lokum.

Nýjustu fréttir

Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.