Loðna hefur veiðst víða fyrir sunnan land og austan á vertíðinni og er unnið á sólarhringsvöktum þar sem mest umsvif eru. Fyrir helgi fréttist af loðnu við Grímsey og um helgina voru fregnir af loðnu í grennd við Flatey á Skjálfanda.
Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson var í gær á leið á þessar slóðir til að kanna hversu mikið af loðnu er þarna á ferðinni.
Birkir Bárðarson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, sagði í samtali við mbl.is alltaf erfitt að meta hvort marktækt magn sé á ferðinni samkvæmt fréttum sem berist frá veiðiskipum. Fréttirnar frá Grímsey og úr Skjálfanda hafi hins vegar verið þess eðlis að ákveðið hafi verið að kanna það nánar. Því hafi verið ákveðið að gera hlé á leiðangri Bjarna Sæmundssonar, sem var við umhverfismælingar, og halda norður fyrir land. Það ætti því að skýrast á næstu dögum hversu mikið af loðnu er þarna á ferðinni.
Eins og áður sagði hefur loðna veiðst víða undanfarið, norsk skip hafa verið fyrir austan land og aðrir hafa veitt með ágætum árangri í Skeiðarárdýpi, austan og vestan við Vestmannaeyjar og í Grindavíkurdýpi út af Reykjanesi.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.