Eflum löggæslu
eftir Grím Grímsson
Grímur Grímsson

Eitt af fáum kosningaloforðum Viðreisnar fyrir komandi kosningar sem kalla á útgjöld er að við ætlum að fjölga lögreglumönnum. Ég hef starfað sem lögreglumaður í ríflega 37 ár og ég veit að það vantar lögreglumenn á flesta pósta.

Stór verkefni

Þó að lögreglumenn á Íslandi séu fáir er um einvalalið að ræða sem við getum verið stolt af. Best sýnir hæfni og geta þeirra sig þegar mikið er að gera og ná þarf utan um stóra atburði eða verkefni. Við þær aðstæður leggjast allir á eitt og útkoman er yfirleitt góð. Varðandi verkefni sem vel hefur tekist til með má nefna verkefni lögreglu sem tengdust heimsfaraldrinum, verkefni almannavarnardeilda vegna eldsumbrota á Reykjanesi, fund Evrópuráðsins í maí 2023 og fund Norðurlandaráðs í október sl., þar sem forseti Úkraínu var á meðal gesta.

Það er mikilvæg staðreynd að á Íslandi eru ekki óupplýst manndrápsmál frá síðustu áratugum, upplýst hafa verið stór og viðamikil fíkniefnamál, fækkun opinna kynferðisbrotamála, frumkvæðisvinna lögreglumanna við að koma á fót vísi að samfélagslöggæslu og við eftirlit á innri landamærum. Við höfum tekið upp breytt verklag við rannsóknir á heimilisofbeldi sem hefur aukið öryggi þolenda, mikil hæfni hefur áunnist við tækni og tölvubrotarannsóknir og eru þá ekki talin fjöldamörg verkefni þar sem árangur af starfi lögreglunnar er frábær. Lögreglan á Íslandi sinnir löggæslu á stórum alþjóðaflugvelli og nokkrum minni flugvöllum, nokkrum alþjóðlegum höfnum, hefur á að skipa umferðardeildum, greiningardeild og sérsveit og eru þá nefndar aðeins fáar sérhæfðar einingar sem lögregla hefur á að skipa.

Fjölga þarf lögreglumönnum

Hvernig verður búið svo að lögreglunni að hún geti sinnt hlutverki sínu, sem talið er hér að framan, með þeim sóma sem við viljum öll að hún geri? Að mínu mati þarf að fjölga lögreglumönnum myndarlega og það þarf að hefjast handa við það eins fljótt og verða má og gera þarf ítarlega áætlun um hvernig best verði staðið að fjölgun lögreglumanna um land allt. Um leið þurfum við að huga þarf að því að nægilegur fjöldi lögreglumanna verði menntaður og fjölgun lögreglumanna verði stigvaxandi þar til lokamarki er náð.

Í dreifbýli og í fámennari byggðalögum eru lögreglumenn fáir en þeir gegna veigamiklu öryggishlutverki hvað varðar afbrot, almannavarnir og eftirliti á þjóðvegum, svo eitthvað sé nefnt. Fyrir þá sem sinna öryggishlutverki fyrir sitt svæði skiptir þeirra eigið öryggi miklu máli og það er mikilvægt að lögreglumenn séu aldrei einir við störf.

Auk fjölgunar lögreglumanna þarf að fjölga borgaralegum starfsmönnum með sérhæfða menntun og þjálfun sem nauðsynlegt er að lögregla búi yfir í starfsemi sinni. Með fjölgun lögreglumanna verður mögulegt að auka sýnileika lögreglu, en mjög er kallað eftir auknum sýnileika og möguleika á auknu viðbragði við tilteknar aðstæður. Þá verður hægt að styrkja verulega verkefni sem lúta að samfélagslöggæslu og auka þannig samskipti við fólkið. Það skiptir máli að fólk upplifi að tekið sé á glæpum eins og líkamsárásum og innbrotum sem oft skilja eftir sig mikið óöryggi og vanlíðan hjá fórnarlömbum slíkra glæpa.

Eins þurfum við að vera vakandi þegar kemur að landamæragæslu, einkum á Keflavíkurflugvelli og í stærstu höfnum landsins. Með því móti verði hlutverk lögreglu skýrt er varðar erlenda aðila sem hingað leita í þeim tilgangi að stunda hér brotastarfsemi. Að auki verði rannsóknarlögreglumönnum fjölgað við rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi og alvarlegum líkamsárásum og manndrápum.

Viðreisn mun að loknum kosningum setja fjölgum lögreglumanna í forgang og koma þannig löggæslu á það stig að sómi sé að.

Breytum þessu.

 

Grímur Grímsson

 

Höfundur er yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og skipar þriðja sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Nýjustu fréttir

Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.