Eimskip hefur fest kaup á öllu hlutafé Sæferða ehf.
Eimskip hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé fyrirtækisins Sæferða ehf. í Stykkishólmi. Rekstur Sæferða er í sjótengdri ferðaþjónustu þar sem félagið rekur skipin Baldur og Særúnu á Breiðafirði. Með kaupum á Sæferðum er Eimskip að stíga ákveðin skref í að styrkja starfsemi sína í sjótengdri ferðaþjónustu, en félagið hefur á undanförnum árum rekið ferjuna Herjólf á tímabundnum samningi fyrir Vegagerðina sem þjónar samgöngum og ferðaþjónustu milli lands og Vestmannaeyja.
Á árinu 2014 fjárfestu Sæferðir í nýrri og stærri ferju sem tekur fleiri farþega og bíla og eykur möguleika fyrirtækisins til frekari vaxtar. Heildarvelta fyrirtækisins á árinu 2014 nam 560 milljónum króna sem samsvarar 3,6 milljónum evra.
Kaupin á fyrirtækinu eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og eru gerð með þeim fyrirvara að þau verði samþykkt.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips
�??�?g er mjög sáttur við að hafa náð samningum við eigendur Sæferða um kaup á fyrirtækinu, enda um mjög spennandi fyrirtæki að ræða með mikla framtíðarmöguleika er snúa að ferðaþjónustu og samgöngum á vestanverðu landinu. Eimskip mun leggja mikinn metnað í að halda áfram á þeirri braut að efla bæði þjónustu við íbúa svæðisins og ferðaþjónustu í góðu samráði við heimamenn og halda áfram að veita viðskiptavinum félagsins framúrskarandi þjónustu.�??
Páll Kr. Pálsson, stjórnarformaður Sæferða ehf.
�??Við erum mjög sátt við sölu á fyrirtækinu til Eimskips. Sæferðir munu án nokkurs vafa halda áfram að vaxa og dafna í höndum nýrra eigenda, enda hafa fyrirtækin á að skipa öflugum hópi starfsmanna.�??

Nýjustu fréttir

Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.