Einungis fjögur börn á biðlista
Mikið hefur verið byggt í Vestmannaeyjum á síðustu árum og skortur á byggingalóðum.

Í Reykjavík mótmæla foreldrar úrræðaleysi borgaryfirvalda í leikskólamálum, en komið hefur fram að um 800 börn séu á biðlista eftir leikskólaplássi.

í Vestmannaeyjum er aðra sögu að segja, enda þó fólksfjölgun hér hafi verið svipuð og í Reykjavík.

Mannfjöldi í Reykjavík á milli áranna 2021-2022
Mannfjöldi í Vestmannaeyjum á milli áranna 2021-2022

Í fyrirspurn til Vestmannaeyjabæjar kemur fram að einungis fjögur börn séu nú á biðlista eftir leikskólaplássi, en 1. sept var opnað fyrir umsóknir um heimgreiðslur vegna skorts á lekskólaplássum.

Geta þá foreldrar sem hafa sótt um leikskólapláss, en ekki fengið, sótt um heimgreiðslur í staðinn. Þetta á við um öll börn á aldrinum 12-16 mánaða. Heimgreiðslurnar nema 110.000 krónum og flokkast sem tekjur.

Upphaflega sóttu foreldrar sex barna um heimgreiðslur, en síðan þá hafa tvö barnanna fengið leikskólapláss og standa því fjögur börn eftir.

Fjöldi nemenda á leikskólum í Vestmannaeyjum:

Kirkjugerði 76 börn,  Sóli 98 börn og Víkin 47 börn.

 

Nýjustu fréttir

Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Lífríki íslenskra hafna í hættu?
Fimleikafélagið Rán tók þátt í Vormóti Gróttu
Samningi Filip Stuperavic rift við ÍBV
Eyjamenn áhyggjufullir vegna næsta vetrar
Eyjamenn fjölmenntu á samgöngufund Vegagerðarinnar
Ný bæjarstjórn tekur til starfa í dag – fundurinn í beinni
Hvers vegna segja svona margir það sama?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.