Elmar verðlaunaður
Elmar_DSC_0255
Elmar Erlingsson. Eyjar.net/Óskar P. Friðriksson

Lokahóf HSÍ fór fram í hádeginu í dag en þar voru veitt verðlaun til þeirra sem þótt hafa skarað fram úr með sinni frammistöðu á keppnistímabilinu.

Þjálfarar og leikmenn liða í deildunum kusu að lokinni deildarkeppni. Þar var Elmar Erlingsson, leikmaður ÍBV útnefndur besti sóknarmaðurinn og efnilegsti leikmaður Olís deildar karla.

hsi_lokah_2024_fb
Efnilegust: Elmar og Alfa Brá. Ljósmynd/hsi.is

Þjálfarar og leikmenn liða í deildunum kusu að lokinni deildarkeppni og fengu eftirtaldir leikmenn og þjálfarar verðlaun:

Háttvísisverðlaun HDSÍ kvenna
Karen Tinna Demian – ÍR

Háttvísisverðlaun HDSÍ karla
Árni Bragi Eyjólfsson – Afturelding

Besta dómaraparið:
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson

Besti varnarmaður Olís deildar kvenna
Thea Imani Sturludóttir – Valur

Besti varnarmaður Olís deildar karla
Alexander Örn Júlíusson – Valur

Besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Elín Rósa Magnúsdóttir – Valur

Besti sóknarmaður Olís deildar karla
Elmar Erlingsson – ÍBV

Besti markmaður Olís deildar kvenna
Hafdís Renötudóttir – Valur

Besti markmaður Olís deildar karla
Björgvin Páll Gústavsson – Valur

Besti þjálfari í Olís deildar kvenna
Ágúst Þór Jóhannsson – Valur

Besti Þjálfari í Olís deildar karla
Sigursteinn Arndal – FH

Efnilegasti leikmaður Olís deildar kvenna
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín – Fram

Efnilegast leikmaður Olís deildar karla
Elmar Erlingsson – ÍBV

Besti leikmaður í Olís deildar kvenna
Elín Klara Þorkelsdóttir – Haukar

Besti leikmaður í Olís deildar karla
Benedikt Gunnar Óskarsson – Valur

Sigríðarbikarinn – Milivægasti leikmaður Olís deildar kvenna
Sigríðarbikarinn er kenndur við Sigríði Sigurðardóttir sem á sínum tíma var fyrst íslenskra kvenna til að verða valinn íþróttamaður ársins eftir sigur á Norðurlandamótinu 1964. Handhafi Sigríðarbikarsins 2024 var valin Thea Imani Sturludóttir – Valur.

Valdimarsbikarinn – Milivægasti leikmaður Olís deildar karla
Valdimarsbikarinn er kenndur við Valdimar Sveinbjörnsson leikfimikennara sem á sínum tíma hóf þjálfun og kennslu á handknattleik á Íslandi. Handhafi Valdimarsbikarsins 2024 var valinn Aron Pálmarsson – FH.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.