Eydís María gengur til liðs við ÍBV frá Grindavík/Njarðvík
Eydís María Waagfjörð. Mynd/ÍBV knattspyrna

Eydís María Waagfjörð er gengin til liðs við kvennalið ÍBV og mun klára tímabilið með Eyjakonum í Bestu deildinni. Hún kemur til liðsins frá Gindavík/Njarðvík, þar sem hún hefur leikið frá upphafi árs 2025. ÍBV greindi fram á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.

Eydís er 19 ára gömul, uppalin í Stjörnunni en hún hóf sinn knattspyrnuferil þar árið 2014. Hún á að baki þrjá landsleiki fyrir u-17 ára landslið Íslands.

Eydís spilaði 18 leiki fyrir Grindavík/Njarðvík í Lengjudeildinni í fyrra og skoraði í þeim sex mörk. Hún hafði aðeins leikið einn leik með þeim þetta tímabil í Bestu deildinni.

Nýjustu fréttir

Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.