Eyjapeyjarnir í U19

Elmar í þriðja og fimmta sæti

Eyjamaðurinn og leikmaður U19 ára landsliðs karla er í fimmta sæti á lista yfir þá leikmenn sem áttu flestar stoðsendingar á heimsmeistaramóti 19 ára landsliða sem lauk í Varazdin í Króatíu í gærkvöld. Elmar er með skráðar 39 stoðsendingar í sjö leikjum með íslenska liðinu á mótinu.

Þegar litið er til meðaltals þá varð Elmar í þriðja sæti með 5,6 sendingar að meðaltali í leik. Aðeins Svíinn Axel Mansson með 6,1 sendingu og Færeyingurinn Óli Mitttún með 8,75 stoðsendingar, eru fyrir ofan. Mansson og Elmar tók þátt í sjö leikjum hvor á mótinu en Óli lék átta leiki og varð auk þess með lang flestar stoðsendingar, 70.

Nappaði boltanum níu sinnum

Elmar er í 13. sæti yfir þá leikmenn mótsins sem tókst að nappa boltanum hvað oftast af andstæðingum sínum. Það tókst Elmari í níu skipti, eða ríflega einu sinni í hverjum leik.

Fastir fyrir

Ívar Bessi Viðarsson og Skarphéðinn Ívar Einarsson voru fastir fyrir í vörn Íslands í mótinu og gengu oft full vasklega fram að mati dómaranna. Þeir eru ásamt fleirum í 20. sæti yfir leikmenn sem oftast voru dæmd á vítaköst. Á hvorn þeirra voru dæmd fimm vítaköst í mótinu. Skarphéðni var vikið átta sinnum af leikvelli í tvær mínútur og Ívari í sjö skipti. Báðir eru á topp 10 listanum í þeim efnum.

Mynd: IHF / HRS / kolektiff. Elmar Erlingsson sækir að vörn Svartfellinga í leik á HM í Króatíu. 

Fréttina í heild sinni má nálgast hér.

Nýjustu fréttir

Kristmundur Axel meðal listamanna á Hljómey
Dýptarmæling í Landeyjahöfn í dag – uppfært
Rakel Rut Rúnarsdóttir fimleikakona ársins hjá Rán
Grjótharðir Glacier Guys í Eyjafréttum í dag
Loðnuráðgjöf hækkuð í 197 þúsund tonn
Önnur sýning á lifandi kvikmyndum í Sagnheimum
Eyjafréttir í nýjum búningi á nýju ári
ÍBV tekur á móti Fram í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.