Fimmtán daga lundaveiði heimiluð
Lundi
Lundasumarið var alveg frábært og lundinn mætti í milljóna tali, segir í grein Georgs.

Meðal erinda á dagskrá fundar umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja í vikunni voru lundaveiði. Ráðið hefur samþykkt að heimila lundaveiði í Vestmannaeyjum dagana 1. til 15. ágúst 2023. Ráðið telur afar mikilvægt að stýring veiða á lunda í Vestmannaeyjum taki á öllum stundum fyrst og fremst mið að viðkomu stofnsins. Samkvæmt lögum er veiðitímabil lunda að öllu jöfnu frá 1. júlí til 15. ágúst. 

Reynsla síðastliðinna ára hefur sýnt að þeir fáu dagar sem lundaveiði er heimiluð eru nýttir til þess að viðhalda þeirri menningu sem fylgir veiðinni og úteyjarlífi almennt. Lundaveiðimenn hafa sýnt ábyrgð í veiðum s.l. ár og veiðifélögin eru áfram hvött til að standa vörð um sitt nytjasvæði og upplýsi sína félagsmenn um að ganga fram af hófsemi við veiðarnar.

Þetta segir í fundagerð.

Nýjustu fréttir

Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.