Eyjakonan Bryndís Jóhannesdóttir, eða Biddý eins og hún er alla jafna kölluð, var í liði ÍBV sem hampaði bikarmeistaratitlinum árið 2004. Skoraði hún jafnframt fyrra markið í 2:0 sigrinum á Val og segir hún tilfinninguna hafa verið draumi líkast.
Árið áður töpuðu þið fyrir Val í úrslitum bikarsins og sömuleiðis báðum leikjunum í deildinni þetta tímabil. Hversu sætt var að klára þennan leik og fyrir þig persónulega að skora fyrra markið? �??�?að var svakalega mikill rígur á milli þessara liða þetta ár. Við áttum jú harðar rimmur í deildinni og vorum grautfúlar að tapa báðum deildarleikjunum og því var að alveg á hreinu að við ætluðum að vinna þennan leik. Fyrir mig persónulega var eiginlega draumi líkast að skora í þessum leik. �?g man að ég nefndi það við mömmu daginn fyrir leikinn að það væri örugglega ótrúleg tilfinning að skora í svona leik. Mig eiginlega grunaði ekki að ég myndi skora í þessum leik því ólíkt öðrum tímabilum með ÍBV var ég ekki búin að skora mikið þetta tímabil. En svo þegar ég var búin að skjóta í stöngina kom ekki annað til greina en að skora þegar ég fékk annað tækifæri eftir snilldar sendingu frá Elínu �?nnu sem þá spilaði með okkur,�?? segir Biddý.
Vorum tilbúnari en mótherjinn
�?ið voruð töluvert betri aðilinn í leiknum og ógnuðu Valskonur lítið sem ekkert í leiknum. Hver var munurinn á liðunum þennan daginn? �??�?g myndi segja að við vorum bara tilbúnari í að gera það sem þarf í svona leik. �?egar við settumst niður daginn eftir leikinn og horfðum aftur á hann þá sáum við það í andlitunum á okkur þegar það var verið að spila þjóðsönginn að við vorum tilbúnari en þær. Einbeitningin skein úr andlitinu á okkur öllum, byrjunarliðinu, varamönnum, þjálfurum og öllum þeim sem komu að þessu,�?? segir Biddý sem telur möguleika ÍBV liðsins í dag vera nokkuð góða en liðið er í svipaðri stöðu og liðið var í árið 2004, komið í úrslitaleikinn annað árið í röð eftir að hafa tapað þeim fyrri.
�??�?g tel möguleikana hjá stelpunum góða í ár. �?etta gæti orðið bara svona copy paste af því sem var hjá okkur. Tapa fyrra árið en vinna svo seinna árið. �?að er alltaf ákveðin hræðsla og stress sem fylgir því að taka þátt í sínum fyrsta bikarleik og núna eru flestar að fara í sinn annan bikarleik í röð. �?ær eru reynslunni ríkari og búnar að standa sig rosalega vel í sumar. �?að væri rosalega gaman ef þær koma með bikarinn aftur heim eftir öll þessi ár.�??
Enga trú á öðru en að liðið standi uppi sem bikarmeistari
Aðspurð segir Biddý ánægjulegt að sjá liðið aftur komið í fremstu röð en ásamt því að vera komið í bikarúrslit, þá er liðið einnig í harðri baráttu um annað sætið í deildinni eftir að hafa lagt topplið �?ór/KA að velli í síðasta leik. �??�?að er frábært að sjá liðið standa sig svona vel. �?að eru stelpur þarna sem hafa lagt mikið á sig til þess að komast þangað sem þær eru að uppskera vel. Svo finnst mér Ian vera topp þjálfari og liðið sé komið svona langt vegna þess hve fær þjálfari hann er. �?g hef enga trú á öðru en í ár verði árið sem við vinnum þennan bikar í annað skipti.�??