Konukvöld hafa verið vinsæl í aðdraganda jóla í verslunum í Eyjum undanfarin ár. Nú ætlar Tölvun að efna til fyrsta peyjakvöldsins þar sem kynntar verða spennandi tækninýjungar og snjallar lausnir. Davíð Guðmundsson, eigandi Tölvunar, segir að allir séu velkomnir, enginn kynjakvóti muni flækjast fyrir karl- og kvenmönnum í Tölvun í kvöld frá klukkan 18 til 21.
�??Sérfræðingar Tölvuteks verða á staðnum og kynna það nýjasta og heitasta í tölvubransanum,�?? segir Davíð. Honum fannst kominn tími til að gleðja peyjana og nördana í Eyjum og segja frá ýmsum nýjungum í tölvutækninni. Davíð bendir græjuáhugamönnum sérstaklega á svonefnd snjallúr sem dæmi um það sem koma skal. �?að verður heitt á könnunni í Tölvun í kvöld og léttar veitingar á boðstólum.