Framkvæmdir eru hafnar við grunn fjölnota íþróttahúss og áætlanir gera ráð fyrir að húsið verði komið í gagnið í október eða nóvember. Fyrsta skóflustungan var tekin í lok september 2007 og jarðvegsframkvæmdir hófust ári síðar. „Við byrjuðum á grunninum 2. febrúar og erum að vinna í sökklinum allan hringinn. Húsið er 4500 fermetrar að innanmáli þannig að þetta er talsvert verk,“ sagði Magnús Sigurðsson, framkvæmdastjóri Steina og Olla sem er verktaki hússins.