Gagnrýnir bæinn vegna tafa og framkvæmda — bæjarráð hafnar beiðni um kaup
Ráðið telur ekki forsendur til að kaupa eignir við Skólaveg og Sólhlíð
Althus 20251022 140023
Fram kemur í erindinu að mikið jarðrask hafi verið í allt sumar við Alþýðuhúsið. Myndin er tekin í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur hafnað beiðni Þrastar Johnsen um að sveitarfélagið kaupi eignir við Skólaveg 21B og Sólhlíð 17, verði byggingarleyfi fyrir þær ekki veitt. Málið tengist áralangri deilu um byggingarheimildir og aðgengi að Alþýðuhúsinu, sem Þröstur segir hafa orðið fyrir tjóni vegna framkvæmda.

Götur lokaðar og aðgengi torveldað

Í erindi Þrastar Johnsen, sem hann sendi bæjaryfirvöldum 27. maí og ítrekaði síðar, fer hann fram á að Vestmannaeyjabær annaðhvort veiti byggingarleyfi fyrir verkefnum hans við Skólaveg 21B og Sólhlíð 17 eða kaupi eignirnar og axli þannig ábyrgð, eins og það er orðað í erindinu.

Hann segir að bærinn hafi ekki svarað formlegum fyrirspurnum hans innan lögboðins frests og gagnrýnir að framkvæmdir í og við Alþýðuhúsið hafi raskað starfsemi hússins í allt sumar. Þar hafi götur verið lokaðar og aðgengi torveldað, sem hafi leitt til þess að fresta hafi þurft viðburðum eða þeir fallið niður.

Þröstur telur að sveitarfélagið hafi mismunað honum og sýnt vanvirðingu í málinu. Hann hvetur bæjaryfirvöld til að vinna með honum í stað þess að vinna gegn honum. Þá bendir hann á að önnur sveitarfélög hafi tekið upp sambærilegar lausnir með því að kaupa fasteignir sem þau vilja hafa stjórn á og leigja þær út eða nýta sjálf.

Þessu tengt: Synjað um að breyta Alþýðuhúsi í fjölbýlishús

Mikilvægt að tryggja góða upplýsingagjöf til íbúa

Samkvæmt fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyja getur ráðið ekki orðið við beiðni um kaup á eignunum. Hins vegar sé mikilvægt að tryggja góða upplýsingagjöf til íbúa vegna framkvæmda. Framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs var falið að svara þeim hluta erindisins sem snýr að framkvæmdum við Skólaveg 21B.

Aðrir þættir málsins eru í farvegi hjá umhverfis- og skipulagsráði. Í fundargerðinni kemur fram að öllum fyrirspurnum Þrastar hafi verið svarað, meðal annars á fundi 11. júní og í tölvupóstum 12.–16. júní, þar sem bent hafi verið á að umsóknargögnum væri ábótavant.

Málið var síðast tekið fyrir í umhverfis- og skipulagsráði 7. júlí, og tilkynning um niðurstöðu send daginn eftir. Ný fyrirspurn frá Þresti barst 9. júlí og var henni svarað samdægurs, segir m.a. í svari bæjarráðs.

Nýjustu fréttir

Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.