Geisli nýr umboðsaðili Vodafone í Vestmannaeyjum
Raftækjaverslunin Geisli hefur tekið við sem umboðsaðili Vodafone í Vestmannaeyjum. Framvegis geta viðskiptavinir Vodafone í Eyjum því sótt alla þjónustu, jafnt tæki sem og fjarskiptaþjónustu, í verslun Geisla við Hilmisgötu. Geisli hefur jafnframt þegar tekið við uppsetningum og bilanaviðgerðum fyrir fjarskiptafélagið. Geisli býr að langri sögu í Vestmannaeyjum en frá upphafi hefur fyrirtækið veitt alhliða rafvirkjaþjónustu jafnt einstaklingum og fyrirtækjum auk þess að reka í dag raftækjaverslunina við Hilmisgötu 4.
�?etta kemur fram í frétt frá fyrirtækjunum þar sem Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu segir: �??�?að er okkur mikil ánægja að ganga til samstarfs við Geisla, rótgrótið fyrirtæki í Eyjum. Að sama skapi þökkum við Sport & tækni fyrir samstarfið til þessa. Hjá Vodafone erum við stolt af öflugu neti umboðsmanna okkar um land allt. Við erum einstaklega ánægð með að Vestmannaeyjar séu áfram hluti af þessu þétta neti enda ófá fyrirtæki í Vestmannaeyjum á meðal viðskiptavina okkar. Geisli er gott og stöndugt fyrirtæki sem Eyjamenn þekkja vel og við hlökkum til komandi samstarfs.�??
Pétur Jóhannsson verslunarstjóri Geisla sagði: �??Við hjá Geisla erum mjög ánægð með að vera komin í samstarf við Vodafone enda öflugt alhliða fjarskiptafyrirtæki sem býður upp á margþætta þjónustu, jafnt fyrir einstaklinga sem og fyrirtæki. Vodafone er jafnframt eina fjarskiptafélagið á landinu sem veitir viðskiptavinum sínum ótakmarkaða þjónustu í Vestmannaeyjum. Við hlökkum til samstarfsins og bjóðum alla Eyjamenn velkomna í Geisla�??.

Nýjustu fréttir

Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum
ÍBV úr leik í Mjólkurbikarnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.