Giggó — nýtt app

Alfreð ehf. fagnaði ársbyrjun 2024 með því að skjóta á loft nýju appi sem kallast Giggó. Landsmenn hafa þar með fengið aðgang að markaðstorgi fyrir gigg af öllu tagi, bæði fyrir verktaka og fólk sem vill kaupa þjónustu þeirra.

Í rúman áratug hefur Alfreð verið leiðandi í að tengja saman fólk og fyrirtæki og koma á starfssamningum milli starfsfólks og atvinnurekenda. Hugmyndin um að búa til samsvarandi lausn fyrir verktaka, einyrkja og sjálfstætt starfandi hæfileikafólk féll því einkar vel að þeirri reynslu og þekkingu sem fyrir er innan fyrirtækisins. Eftir góðan sprett við hönnun og þróun appsins hefur Giggó litið dagsins ljós.

Fimm stjörnu viðtökur

Á Giggó er hægt að setja inn smáauglýsingu og óska eftir hverskonar giggurum, allt frá veislustjórn og málningavinnu til Sorpuferða. „Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og fjöldi giggara hefur nú þegar skráð sig. Þau eru öll boðin og búin að taka næsta gigg. Fyrsta giggið fékk fimm stjörnur þannig að þetta byrjar vel,“ segir Anna Katrín Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Alfreðs og Giggó og þakkar öllum þeim giggurum sem þegar hafa skráð sig á Giggó.

Þegar gigg er afgreitt á Giggó er hvatt til að gefa giggaranum stjörnur fyrir frammistöðuna. Eftir því sem notkunin eykst og verkefnum vindur fram fá notendur skýrari mynd af því hvaða giggarar skara fram úr í sínu fagi, m.a. út frá stjörnugjöf og umsögnum. Að þessu leyti felur Giggó í sér notendastýrt gæðakerfi líkt og sjá má á öðrum markaðstorgum á borð við Uber eða Airbnb. Giggó er því upplagt tækifæri fyrir upprennandi giggara til að geta sér gott orð á sínu sviði.

Giggó og landsbyggðin

Það verður spennandi að sjá hvernig landsbyggðin tekur Giggó og ekki síst hvort staðbundin menning og atvinnulíf birtist í notkun appsins. Bændur á Íslandi eru  t.d. annálaðir giggarar og þúsundþjalasmiðir og stökkva iðulega í íhlaupavinnu milli háannatíma í sveitinni. Þeir eiga fullt erindi á Giggó og geta svo líka nýtt appið til að auglýsa dagsverk við smölun eða í girðingarvinnu. Möguleikarnir eru ótæmandi. Í sjávarbyggðum gæti Giggó hjálpað til við að bjarga verðmætum afla. Loks er hægt að ímynda sér kvikmyndafyrirtæki við tökur í fögrum dal sem vantar aukaleikara með skömmum fyrirvara. Með því að sækja talentinn í nærsveitir mundi smáauglýsing á Giggó borga sig margfalt með sparnaði í uppihaldi og ferðakostnaði. Hvað sem öðru líður þá er Giggó frábært tækifæri og gæti orðið öflugt krydd í atvinnulífið á landsbyggðinni.

„Með Giggó verður til samfélag fyrir þau sem starfa sjálfstætt, þægilegri leið til að redda næsta giggi án þess að þurfa að harka. Við sjáum fyrir okkur að Giggó muni á næstu árum gjörbreyta landslaginu að þessu leyti. Á Giggó eigum við öll að geta fundið sérfræðinga eða fagfólk sem er laust í gigg þegar á þarf að halda,“ segir Anna Katrín.

Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Glacier Guys með nýtt föstudagslag
„Úttroðinn af loðnu”
Fréttapýramídar afhentir fyrir nýliðið ár
Karlar hvattir til að sýna handverk

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.