Góð makrílveiði í Smugunni þessa sólarhringana

Huginn VE kom úr Smugunni með alls um 1.300 tonn af ferskum og frosnum makríl sem verið er að landa í Eyjum.

Kap VE er á miðunum og gert er ráð fyrir að skipið leggi af stað heimleiðis í kvöld eða á morgun með fullfermi, um 800 tonn.

Ísleifur VE er um það bil að koma í Smuguna og fer í það fyrst að aðstoða Kap við að fylla sig og koma sér heim.

„Veiðin hefur verið upp og ofan það sem af er en ef veiðist vel næstu daga og vikur og fram í miðjan september verður hiklaust hægt að tala um ágætis vertíð,“ segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar.

„Makríll hefur varla fundist í veiðanlegum torfum í íslenskri lögsögu í sumar en Norðmenn eru hins vegar að veiðum núna í sinni lögsögu rétt austan við Smugulínuna.

Makríllinn er hvað viðkvæmastur um þetta leyti árs þegar hann er í ætisleit og fitnar hratt. Þegar líður á sumarið og fram á haust gengur fitan inn í holdið og það styrkist. Varan verður að sama skapi betri og verðmætari.“

  • Óskar, stýrimaður á Ísleifi, tók myndina af Hugin á miðunum í Smugunni en Trausti Hjaltason tók myndirnar af löndun úr Hugin.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.