Góður afli á Örvæntingu
Bergur_vestmannaey_naer_24_IMG_4466
Vestmannaey VE og Bergur VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaeyjaskipin, Bergur VE og Vestmannaey VE, lönduðu bæði fullfermi í Neskaupstað í gær. Aflinn var mest þorskur en einnig töluvert af ufsa og dálítið af ýsu.

Rætt er við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag. Þar eru þeir spurðir hvernig túrinn hefði gengið fyrir sig. Jón Valgeirsson á Bergi sagði að þeir hefðu hafið veiðar á Síðugrunni. „Síðan var kíkt á Ingólfshöfðann en þaðan var strauið tekið austur. Við byrjuðum þar í Hvalbakshallinu en síðan var farið á Örvæntinguna og þar var ágætis veiði. Komið var til hafnar í Neskaupstað á laugardag,” segir Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að þeir hefðu verið á svipuðu róli og Bergur í túrnum. „Við hófum veiðar á Síðugrunni og síðan voru tekin tvö hol á Ingólfshöfða. Þá var tekið eitt hol í Sláturhúsinu og eitt á Lónsbugtinni. Við enduðum síðan í ágætri veiði í Hvalbakshallinu og á Örvæntingu. Það er mikið æti hér fyrir austan, bæði síld og kolmunni. Fiskurinn er í ætinu og þetta er fallegasti fiskur,” er haft eftir Birgi Þór.

Skipstjórarnir segjast reikna með að fiska mikið fyrir austan land næstu mánuði og þá verði líklega að mestu landað í Neskaupstað. Þó munu bæði skipin landa í Eyjum síðar í þessari viku.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.