�?að var mikið fjör í Eldborgarsal Hörpu síðastliðinn föstudag þar sem The Cavern Beatles tróðu upp og fluttu gömlu góðu Bítlalögin í anda hinna einu sönnu Bítla. Viðtökur voru frábærar í fullu húsi og vel tekið undir í flestum laganna. �?að var Bjarni �?lafur Guðmundsson, Eyjamaður sem stóð fyrir tónleikunum og var hann ánægður með hvernig til tókst. �?skar Pétur
ljósmyndari var á staðnum og fangaði stemmninguna. Hákon Tristan, áttta ára sonur Bjarna átti augnablik kvöldsins þegar hann var kallaður upp og söng með í lagi Pauls, Hey Jude þar sem allur salurinn tók undir. Sannkallaður senuþjófur.