Hefðbundinn veiðirúntur

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í gær. Bergur landaði í Grindavík en Vestmannaey í Vestmannaeyjum. Síldarvinnslan ræddi stuttlega við skipstjórana og innti þá frétta af veiðiferðinni.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að túrinn hjá þeim hafi verið stuttur. „Við fórum út á sunnudag og áttum að taka karfa í túrnum. Haldið var í Skerjadýpið og þar gekk vel að fiska. Það var ágætis nudd þarna. Við vorum svo kallaðir inn og komum til Grindavíkur í gærkvöldi með um 40 tonn. Aflinn fékkst í fimm holum og er hann mest djúpkarfi og síðan dálítið af gullkarfa. Það verður landað í dag og við höldum á ný til veiða í kvöld,“ segir Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að túrinn hjá þeim hafi gengið ágætlega. „Aflinn hjá okkur er mest þorskur og ýsa og við erum með fullt skip. Það var farinn hefðbundinn veiðirúntur, byrjað á Pétursey og Vík og síðan veitt á Ingólfshöfða, í Sláturhúsinu og á Mýragrunni. Það er heldur farið að hægja á ýsuveiðinni eins og oft gerist þegar hausta tekur en þorskveiðin var bara góð. Við förum á ný til veiða á morgun en það fækkar óðum túrunum á þessu kvótaári,“ segir Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.