Heimaeyjar-gossins minnst
SJ 42415 Gullberg VE 292 Heimaeyjargosið D1-1 23.01.1973
Frá gosnóttinni, 23. janúar 1973. Ljósmynd/Sigurgeir Jónasson

Á morgun, laugardaginn 27. janúar milli klukkan 13 og 14 verður boðið uppá dagskrá í Sagnheimum, þar sem minnst verður upphafs eldgossins á Heimaey fyrir röskri hálfri öld.

Tryggvi Sigurðsson, Ómar Garðarsson og Frosti Gíslason fjalla þar um gosupphafið.

Tryggvi Sigurðsson rekur ferðasögu nokkurra báta er fóru hina örlagaríku nótt til lands en hann er sem kunnugt er óþrjótandi hafsjór þekkingar um bátana og þá sem þar áttu andvökunótt.

Ómar Garðarsson og Frosti Gíslason ræða um næstu skref verkefnisins “Allir í bátana” en í samstarfi við frumkvöðulinn, Ingiberg Óskarsson, er ætlunin að koma þeim upplýsingum sem þar er að finna í notendavæna heimasíðu.

Ramminn utan um dagskrána er hin glæsilega sýning “Til hafnar” sem Vala Pálsdóttir og Joe Keys hönnuðu og settu upp. Þar er að finna ljósmyndir af þeim tæplega 80 bátum sem sigldu með Eyjamenn til meginlandsins nóttina sem gos hófst.

Kjörið tækifæri til að sjá sýninguna og fræðast um einstakan viðburð í sögunni.

 

Nýjustu fréttir

Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.