Heimsókn bandaríska sendiherrans
Drífa sýnir réttu tökin þegar pysju er sleppt.

Carrin Patman, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, kom í heimsókn til Eyja ásamt eiginmanni sínum í síðustu viku. Drífa Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs tók á móti þeim. Fengu þau að sjá endurbæturnar á Ráðhúsinu áður en farið var í heimsókn í Sealife. Mikil upplifun var að sjá mjaldrana og lundapysjurnar sem þar eru.

Eftir heimsóknina í Sealife slepptu sendiherrahjónin lundapysjum og fýlsunga sem vakti mikla hrifningu þeirra. Þaðan var farið í Eldheima þar sem þau fengu að kynnast sögu okkar Vestmannaeyinga um gosið og þær breytingar sem urðu á eyjunni í kjölfarið.

Af heimasíðu Vestmannaeyjabæjar – vestmannaeyjar.is

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.