Herrakvöld ÍBV í Reykjavík
Herrakvold IBV RVK
Mynd/aðsend.

Knattspyrnudeild ÍBV heldur herrakvöld í Reykjavík föstudaginn 23. maí nk. í Víkingssalnum/Fram Safamýri 26. Þar er ætlunin að skapa sannkallaða Eyja/ÍBV stemningu og gera þetta að einstaklega skemmtilegu kvöldi, segir í tilkynningu frá knattspyrnudeild ÍBV.

Þar segir jafnframt að sérstakur heiðursgestur verði okkar ástsælasti sonur, Ásgeir Sigurvinsson.

„Við ætlum að koma þarna saman og þakka honum sérstaklega fyrir hans framlag til íslenskar knattspyrnu að tilefni að 70 ára afmæli hans 8. maí sl.  Það er von okkar að sem flest okkar gefi sér tíma og taki þátt í þessum samfögnuði með Ásgeiri.

Veislustjóri verður Martin Eyjólfsson, betur þekktur sem bjargvætturinn. Ræðumenn verða þeir Einar Kárason rithöfundur, Halldór Einarsson oftast kenndur við Henson og Ingólfur Hannesson fyrrverandi íþróttafréttamaður. 

Um matseldina sér matreiðslumeistarinn og Eyjamaðurinn Kristófer Helgason, þar sem boðið verður upp á gómsætt grillað lambalæri með alles. Trúbador mun síðan halda uppi stemningunni fram eftir kvöldi.

Verð er aðeins 11.900 kr. og er hægt að panta miða á knattspyrna@ibv.is eða í síma 766-8134 (Hlynur Sigmars). Hægt er að panta 6-20 manna borð fyrir hópa ef menn vilja. Takið daginn frá og komum fagnandi!

Áfram ÍBV” 

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.