Hljóta að vera nokkur hundruð þúsund tonn

Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq landaði fullfermi af frystri loðnu í Hafnarfirði í gær. Að löndun lokinni ákvað Geir Zoëga skipstjóri að kanna hvort loðnu væri að finna í Jökuldýpinu norðvestur úr Garðskaga. Frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Hann þurfti ekki að leita lengi. „Við komum hérna í svakalega torfu. Hún er tæpar fimm sjómílur á lengd og þétt. Hún er frá kili og niður undir botn. Hér er sko alvöru vertíðarganga á ferðinni. Þetta hljóta að vera nokkur hundruð þúsund tonn. Við erum nú að mæla þessa risalóðningu og síðan ætlum við að svipast frekar um. Þessi ganga hér verður væntanlega komin inn á Breiðafjörð um helgina og mun líklega hrygna þar í næstu viku. Það fréttist af loðnu víða þessa dagana. Það virðist vera loðna héðan frá Faxaflóanum og austur með allri suðurströndinni. Það hefur til dæmis verið mikil loðna í Háfadýpinu. Síðan hafa borist fréttir af loðnu fyrir norðan land og nú mun Bjarni Sæmundsson vera að kanna stöðuna þar. Þetta er alvöru, það fer ekkert á milli mála,“ segir Geir.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.