Íris bæjarstjóri - Sögurnar margar og teygja  sig víða
23. janúar, 2023

Okkur er tamt að segja í Vestmannaeyjum – fyrir og eftir gos. Svo djúp og lifandi er minningin um eldgosið sem hófst fyrir réttum 50 árum, eða aðfararnótt 23. janúar 1973. Fimm þúsund og þrjú hundruð Eyjamenn þurftu að yfirgefa heimili sín sem mörg hver fóru undir ösku og eld. Þessa sögu þekkja allir Íslendingar og í Eyjum gerum við meira en að þekkja söguna – við lifðum hana – og hún er stór hluti af því að vera Vestmannaeyingur.

Þessi stærsti viðburður í 1000 ára sögu Eyjanna, og í raun landsins alls, er hálfrar aldar gamall. Það eru því fyrir löngu komnar fram kynslóðir þar sem eldgosið er saga en ekki upplifun. Því er mikilvægt að við varðveitum minningar og heimildir frá þessum tíma.

Sögurnar eru margar og teygja  sig víða um íslenskt samfélag  – og til annarra ríkja líka.

Heimaeyjargosið er einn af þessum viðburðum sem aldrei gleymist þeim sem hafa aldur til að muna. Ég á sjálf fjölskyldusögu eins og svo margir aðrir Eyjamenn frá þessari nótt – og því sem við tók.

Mamma, Svanhildur Gísladóttir, var 23ja ára gömul, með mig eins árs gamla og komin sjö mánuði á leið með systur mína 22. janúar 1973. Hún og pabbi, Róbert Sigmundsson, voru fyrstu nóttina á nýju heimili í Viðey – á Vestmannabraut 30. Þau voru ný sofnuð þegar Hansína, systir mömmu, vakti þau og lét vita að eldgos væri hafið í austurbænum.

Mamma trúði henni nú tæplega sem von var. En þetta var raunin og við fjölskyldan, ég mamma og pabbi fórum niður á bryggju. Ég klædd í úlpu og ullarsokka – og mamma tók með eina bleyju og pela. Mamma ætlaði bara að fara sutta stund og koma svo heim aftur, en það var ekki raunin. Við fórum með fiskibáti eins og stór hluti íbúa á Heimaey – og vorum við mæðgur mjög sjóveikar en vorum samt heppnar því við fengum koju.

Erfið ferð

Ferðin var erfið og mömmu hryllir alltaf við að rifa hana upp. Hún lætur þó alltaf fylgja með að Guð hafi verndað okkur og aðra Eyjamenn þessa nótt. Ég held að það sé mikið til í því.

 

Við fjölskyldan fengum ekki húsnæði fyrst í stað, en fengum svo loks íbúð á Laufásvegi þar sem Hrönn systir bættist í hópinn í mars 1973.

Fyrsta skírn í Landeyjarkirkju eftir gos

Mamma var og er mjög trúuð kona. Hún ræddi við sr. Karl Sigurbjörnsson, sem þá var prestur í Vestmannaeyjum, í byrjun júlí þegar tími var kominn til að skíra Hrönn. Sr. Karl lagði til að skírnin færi fram í fyrstu messu í Landakirkju eftir að gosi væri formlega lokið.

Það varð úr og við fjölskyldan flugum til eyja í júlí – með sr. Karli. Það var auðvitað allt svart, og það þurfti meira að segja að grafa göng í gegnum vikurinn til að komast inn í kirkjuna.

Mig langar að vitna í orð mömmu, í viðtali sem Guðrún Erlingsdóttir tók við hana og birtist í Morgunblaðinu 2018, sem lýsa þessar sérstöku og fallegu stundu vel:

„Þegar við komum inn í anddyrið var það fullt af stígvélum og kirkjan troðin af fólki. Aðallega karlmönnum í vinnufötum sem unnu við hreinsunarstörf og uppbyggingu. Stígvél voru það eina sem dugði sem skótau á þessum tíma og þeir vildu ekki fara inn í kirkjuna í þeim,“ mamma verður verður þögul um stund.

„Tilfinningin var sterk þegar ég gekk inn með barnið í hvítum skírnarkjól. Niður kinnar karlmannanna í köflóttum vinnuskyrtum á sokkaleistunum runnu tár. Þó allt væri svart í bænum náðu geislar sólarinnar að skína inn um gluggana og barnið í hvítum skírnarkjól var eins og tákn um upprisu, nýtt upphaf. Karl sagði að þetta hefði verið merkileg athöfn og ég gleymi henni aldrei,“ segir mamma.

Hrönn systir var því fyrsta barnið sem skírt var í Landakirkju eftir gos – í fyrstu messunni. Móðir mín talar enn um þessa athöfn og er svo þakklát sr. Karli. Myndin, sem er tekin fyrir utan Landakirkju þennan dag með Barnaskólann í bakgrunn, segir meira en þúsund orð.

Ég ber ómælda virðingu fyrir því fólki sem tókst á við þessi ósköp – og er þeim líka svo þakklát sem komu aftur heim og byggðu upp okkar yndislegu Eyju. Við heiðrum verk þeirra og minningu best með því að halda ótrauð áfram því uppbyggingarstarfi sem þau lögðu grunninn að. Á þessu ári verður þessara merku tímamóta minnst með margvíslegum hætti og alltaf með virðingu og þakklæti fyrir að ekki fór verr.

Íris Róbertsdóttir – Ávarp flutt í Bústaðarkirkju – Birtist í síðustu Eyjafréttum.

Mynd: Íris og Karl biskup í Bústaðakirkju sunnudaginn 15. janúar sl.

Mynd Ragnar Sigurjónsson.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.