Kátt í Höllinni í jólakaffi VSV
10. desember, 2019

Jólin koma. Yfirgnæfandi líkur eru á að það gerist árlega. Jólakaffi Vinnslustöðvarinnar er að sama skapi fastur viðburður í aðdraganda hátíða í Vestmannaeyjum. Fjölmennt var í Höllinni af þessu tilefni annan sunnudag í aðventu, mikil stemning og hlaðin borð veislufanga í umsjón Starfsmannafélags Vinnslustöðvarinnar.

 

Jólasveinn leit að sjálfsögðu inn galvaskur og dreifði nammi á báða bóga til ungviðisins. Ókennisklæddir jólasveinar afhentu hins vegar starfsmönnum jólagjafir frá VSV , margnota brúsa sem halda heitu eða köldu og gjafabréf frá Íslandsbanka að verðmæti 12.500 krónur.

 

Starfsmenn á tímamótum voru að vanda heiðraðir, annars vegar í tilefni stórafmæla og hins vegar þeir sem luku störfum á árinu og voru leystir út með gjöfum í þakklætisskyni og með árnaðaróskum.

 

  • Andrea Elín Atladóttir varð fimmtug 3. september.
  • Baldur Þór Bragason varð sextugur 22. maí.
  • Elsbieta Chachulav varð sextug 22. ágúst.
  • Jóhann Brandur Georgsson varð sextugur 30. október.
  • Kristján L. Möller varð sextugur 8. júlí.
  • Sigurður Óskar Sveinsson varð sextugur 13. júní.

 

  • Edward Switalski lauk störfum eftir 8 ár í VSV.
  • Sverrir Gunnlaugsson lauk störfum eftir 31 í VSV.

Á daginn kom í jólakaffinu að Jóhann Brandur var ekki á stórafmælalistanum en átti átti þar svo sannarlega heima. Hann er beðinn velvirðingar á því. Það sem verra er að hann heldur ekki á listanum fyrir tíu árum í tilefni af fimmtugsafmæli sínu. Karlinn heldur sér svo vel að í upplýsingakerfi  VSV er hann alltaf skráður 25 ára og ekki degi eldri.

 

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
viðburðir
DSC0245
5. júní 2025
17:00
Opinn fundur í Akóges um veiðigjöld
DSC 2106
8. júní 2025
13:00
Golfdagurinn í Eyjum
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju í Landakirkju
8. júní 2025
17:00
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju
Landakirkja
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.