Staðan varðandi þessa grísku ferju er nokkuð flókin, en eins og ég hef sagt áður er þetta far spennandi kostur, fyrst og fremst vegna þess hversu mikil flutningsgetan er miðað við núverandi ferju og fyrir huguðu nýsmíði og ég hefði gjarnan viljað sjá á þetta reynt. �?g hef ekki trú á því að ef smíðuð verði ný ferja sérstaklega hönnuð fyrir Landeyjahöfn, sem reynist síðan ekki standast þær væntingar um frátafir og annað sem lagt er með upp í upphafi, að hægt verði að heimta nýja stærri ferju eða eitthvað annað slíkt, efir á að hyggja. �?að verður að hafa það í huga að samgöngur við Eyjamenn í dag kosta ríkið 1 milljarð á hverju ári og það þrátt fyrir að það sem við borgum fyrir ferðina sé allt of hátt.
�?að er þrennt sem mig langar að setja hérna fram að lokum, í fyrsta lagi hvet ég áhugahópinn um bættar samgöngur sem er að vinna að því að fá þessa grísku ferju til dáða, það er einfaldlega ekki hægt að gefast upp, það er einfaldleg allt of mikið í húfi.
Í öðru lagi langar mig að skora á strákana í �?gisdyrum, að hefja nú baráttuna upp á nýtt, við vitum öll að það er augljóst að við erum ekki að fá göng alveg á næstu árum, og ég hef nú spáð því að ég muni ekki lifa það að sjá gögn milli lands og Eyja, en auðvitað væri göng eina varanlega lausnin á öllum þessu samgöngu vandamálum. �?g veit reyndar að þeir félagarnir voru komnir ansi langt með málið og urðu fyrir miklum vonbrigðum með það, að þegar á reyndi, þá voru bæði þingmenn og bæjarfulltrúar fljótir að snúa við þeim bakinu. �?g hef einnig heyrt að mörgum eyjamönnum hugnast ekki göng vegna jarðskjálfta og eldgosa hættu, sem og hversu langt er hérna á milli, en ég spyr: Hvar er ekki jarðskjálfta og eldgosa hætta, og ef ég man rétt, þá minnir mig að ég hafi einhvern tímann heyrt að lengstu göng í heiminum væru um 600 km og því okkar 18 km alls ekki svo stórt í því samhengi.
Í þriðja lagi: �?g sá að enn einu sinni er hafin undirskriftar söfnun sem tengd er samgöngumálum okkar, en þær eru orðnar nokkrar á síðust árum, en mig langar að skora á eyja miðlana að setja af stað einfalda kosningu, þar sem eyjamenn geta kosið um sín samgöngumál. Að sjálfsögðu yrði kosningin leynileg, en fólk yrði nú að sjálfsögðu að gefa upp kennitölu, en ég sæi fyrir mér 3 spurningar, einhvern veginn svona:
1. Ert þú sammála því að það eigi að hafa forgang að smíða nýja ferju sem hentar sérstaklega í Landeyjahöfn.
2. Vilt þú að ný ferja verði stærri og gangmeiri heldur en núverandi ferja (eins og t.d. gríska ferjan).
3. Vilt þú að öll samgöngu vandamál eyjamanna verði leyst endanlega með göngum?