Landeyjahöfn - Sigurður Áss og Andrés svara Sævari
Sigurður Áss Grétarsson og Andrés �?. Sigurðsson, sem sæti eiga í vinnuhópi um hönnun og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju, hafa sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu sem birtist í Morgunblaðinu í morgun:
�??Í Morgunblaðinu í gær birtist viðtal við Sævar M. Birgisson en hann sat fyrir tveimur árum síðan í vinnuhópi um hönnun og smíði Vestmannaeyjaferju. Í viðtalinu lýsir hann því yfir að þetta hafi verið »vitlaus nálgun« og hanna hefði átt öflugt skip til að sigla til �?orlákshafnar. Í skipunarbréfi vinnuhópsins kom skýrt fram að verkefnið var að hanna ferju sem gæti siglt til Landeyjahafnar og því hefði það ekki átt að koma honum á óvart hvert verkefnið var.
Hvað varðar fullyrðingar Sævars um að þetta hefði allt verið niðurneglt þá getum við sem sátum með honum í smíðanefndinni ekki tekið undir það. Sævar lagði til málanna á fyrsta fundi en eftir það tók hann lítinn þátt í starfinu og hafði lítið til málanna að leggja. Engar athugasemdir komu frá honum ef frá er talið innlegg hans á fyrsta fundi. �?að hefði verið betra að hann hefði bókað þær athugasemdir sem hann nú kemur fram með þegar hann sat í nefndinni og þáði laun fyrir.
Hönnun nýrrar ferju fer að ljúka og eins og fram hefur komið þurfti að endurbæta hönnun hennar vegna þess að rannsóknir leiddu í ljós að hún uppfyllti ekki kröfur til siglinga í Landeyjahöfn. Nú telja hæfustu skipaverkfræðingar, eftir að hafa endurhannað og endurreiknað, að ferjan geti siglt í Landeyjahöfn. �?að yrði stórt skref afturábak að fresta málinu enn og aftur eins og lagt er til í Morgunblaðinu í gær.
Ástæða er til að taka skýrt fram að sú ferja sem nú er verið að leggja lokahönd á getur auðveldlega siglt til �?orlákshafnar með fleiri farþega og mun fleiri bíla. Rannsóknir sýna að nýja ferjan er betra sjóskip en Herjólfur. Erfiðleikar við Landeyjahöfn felast í tvennu, að útreikningar danskra sérfræðinga á sandburði voru vanáætlaðir og ekki hefur enn verið smíðuð ferja sem hentar Landeyjahöfn. Landeyjahöfn verður heilsárshöfn þegar ný, hentug ferja kemur. Að tryggja nægt dýpi fyrir nýrri ferju verður erfitt en viðráðanlegt.�??

Nýjustu fréttir

Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.