Líkur á áframhaldandi öskufalli í Vestmannaeyjum
Þar sem spáð er áframhaldandi Norð- og norðaustanlægum áttum næstu tvo daga eru líkur á áframhaldandi öskufalli í Vestmannaeyjum frá eldsumbrotunum í Grímsvötnum. Umtalsvert öskufall hefur verið í Vestmannaeyjum síðasta sólarhringinn og fínt öskufjúk er nú í bænum. Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja bendir fólki á að unnt er að nálgast rykgrímur á lögreglustöð, heilbrigðisstofnuninni og á slökkvistöðinni við Heiðarveg. Þá er fólki með öndunarfærasjúkdóma bent á að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu meðan öskufjúk er í bænum.

Nýjustu fréttir

Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.