Lögreglan í Eyjum rannsakar mál tengt svokölluðum „764“ hópi
Lögreglan í Vestmannaeyjum varar við starfsemi hættulegra ‘764’ hópa sem herja á ungmenni á samfélagsmiðlum.

Barnaverndarþjónusta Vestmannaeyja og lögreglan í Vestmannaeyjum sendu í dag frá sér aðvörun til foreldra vegna starfsemi svokallaðra „764“ ofbeldishópa. Tilefnið er mál sem kom nýverið upp í Eyjum þar sem ungmenni var með efni tengt hópnum í síma sínum.

Í tilkynningunni segir að hóparnir nýti börn í annarlegum tilgangi, meðal annars til að hvetja þau til kynferðislegrar eða ofbeldisfullrar hegðunar, sjálfskaða, afbrota og jafnvel sjálfsvíga. Foreldrar eru hvattir til að yfirfara samfélagsmiðla barna sinna og hafa samband við lögreglu eða barnavernd ef eitthvað grunsamlegt kemur upp.

Sjá einnig: Foreldrar hvattir til að yfirfara samfélagsmiðla barna sinna

Stefán Jónsson

Ritstjóri Eyjafrétta ræddi málið við Stefán Jónsson, yfirlögregluþjón í Vestmannaeyjum.

Ungmenni í Eyjum með efni sem tengist hópnum

Að sögn Stefáns barst lögreglunni nýlega ábending sem varð kveikjan að aðvöruninni. „Það barst ábending að ungmenni úr Vestmannaeyjum væri með efni sem kæmi frá þessum hóp í síma sínum,“ segir hann.

Hópurinn, sem hefur verið virkur síðan 2021, starfar aðallega á samskiptaforritum á borð við Discord og Telegram. Þar reyni hann að ná ungmennum á sitt band og beini þeim í kjölfarið út í mjög skaðlega eða hættulega hegðun.

„Þeim er lýst á þá vegu að þeir séu góðir í að fá ungmenni á sitt band og síðan fá þau til þess að framkvæma viðurstyggilegar athafnir… kynferðislegar athafnir, sjálfskaða, drepa gæludýrin sín og í verstu tilfellunum sjálfvíg,“ segir Stefán og bætir við að slíkar athafnir hafi jafnvel verið sýndar í beinu streymi.

„Foreldrar þurfa að fylgjast vel með“

Stefán segir að mikilvægt sé að foreldrar séu meðvituð um samfélagsmiðlanotkun barna sinna, þó það sé oft torvelt í daglegu amstri. „Hafa auga með hvort persónuleikabreytingar hafi orðið… er barnið að fela símaskjáinn, mega aðrir ekki sjá á hann, er það hætt að hafa gaman af hlutum sem áður voru skemmtilegir, kvíði og pirringur,“ nefnir hann sem helstu varnaðarmerki.

Þótt ekki hafi borist fleiri ábendingar í Eyjum er ljóst að hópurinn sé ekki bundinn við eitt svæði. „Því miður hafa komið upp fleiri en ein tilkynning á Íslandi og því full ástæða til að óttast útbreiðslu,“ segir Stefán. Hann bendir á að hópurinn sé upprunalega stofnaður í Texas og nafn hans – 764 – sé póstnúmer stofnandans.

Opinská samtöl mikilvæg og stuðningur í boði

Foreldrar sem verða varir við grunsamlegt efni eru hvattir til að hafa tafarlaust samband við lögreglu eða barnavernd. Aðspurður hvað foreldrar geti gert strax segir Stefán: „Setjast niður með barni og ræða opinskátt um þetta… Brýna fyrir þeim að senda aldrei myndir af sér nema með leyfi foreldra.“

Hann bendir einnig á að lögregla og barnavernd standi foreldrum og börnum til boða varðandi stuðning og ráðgjöf. Samfélagslöggur munu fara í skóla bæjarins á fimmtudag og fræða nemendur um hættur af þessu tagi.

Að lokum vill Stefán hvetja foreldra til að kynna sér málið og fræða sig um hættur á netinu, meðal annars með efni á RÚV þar sem fjallað hefur verið um starfsemi hópsins.

Nýjustu fréttir

Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.