Lokanir Landeyjahafnar hafa áhrif á gjaldskrá Herjólfs
Farþegum hefur fækkað um 32% það sem af er ári og rekstrarkostnaður aukist verulega
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Fargjöld með Herjólfi hækkuðu um 4% þann 8. júní samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. Hækkunin kemur á sama tíma og félagið glímir við erfiðar rekstraraðstæður vegna samgönguvandans sem skapast hefur í vetur og vor.

Samkvæmt nýrri gjaldskrá hækkar fargjald fyrir fullorðna með lögheimili í Vestmannaeyjum um 50 krónur, en um 100 krónur fyrir aðra farþega.

Í tilkynningu frá Herjólfi segir að aðstæður í samgöngum milli lands og Eyja hafi verið afar krefjandi undanfarna mánuði. Fjöldi farþega hafi dregist saman vegna þess hversu erfitt hafi reynst að sigla um Landeyjahöfn og að reksturinn hafi orðið fyrir áhrifum af auknum kostnaði og minni tekjum.

Fram kemur að hækkunin sé hófleg og ætluð til að mæta þessum aðstæðum samhliða áframhaldandi rekstraraðhaldi hjá félaginu.

Tilkynningin kemur í kjölfar þess að fram kom á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja á dögunum að farþegum Herjólfs hefði fækkað um 32% það sem af er ári vegna lokana Landeyjahafnar og aukinna siglinga til Þorlákshafnar. Jafnframt hafi kostnaður félagsins aukist verulega.

Bent er á í tilkynningunni að síðast hafi gjaldskrá fyrir íbúa Vestmannaeyja hækkað 1. janúar 2025. Félagið segist áfram leggja ríka áherslu á að halda fargjöldum eins lágum og kostur er, um leið og tryggð verði örugg og áreiðanleg þjónusta milli lands og Eyja.

 

Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí

bidrod_bbilar_herj_2022

Viðgerð á rafmótor Herjólfs hefur tafist vegna seinkunar á afhendingu varahluta og ljóst er að skipið verður ekki komið aftur í fullan rekstur eins fljótt og vonir stóðu til. Þetta kom fram á fundi fulltrúa Herjólfs með forsvarsmönnum hollenska verkstæðisins Emri, þar sem rafmótor skipsins er í viðgerð. Upphaflega var gert ráð fyrir að viðgerðinni […]

Nýjustu fréttir

Kjarnaborun að hefjast á Landeyjasandi
Lokanir Landeyjahafnar hafa áhrif á gjaldskrá Herjólfs
Svipmyndir frá sólríkum sunnudegi
Jóhannes Grettisson rifjar upp árin á Ísleifi VE
Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.