Lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Selfossi (HSU)
Lyflækningadeildin á Selfossi er 18 rúma sólahringsdeild. Á deildinni fer fram almenn lyflækningaþjónusta og bráðaþjónusta í lyflækningum. Flestir sjúklinganna sem leggjast inn koma vegna bráðara veikinda frá bráðamóttöku HSU eða Landspítala (LSH), hjúkrunarheimilum á Suðurlandi og Sólheimum í Grímsnesi. Sjúklingar leggjast einnig inn á deildina vegna endurhæfingar eða vegna legu í kjölfar aðgerðar frá bæklunardeild LSH, meðferðar vegna langvinnra sjúkdóma eða líknandi meðferðar. Flestir sjúklingar leggjast inn vegna bráðara veikinda.
Um 40% sjúklinga sem leggjast inn á deildina koma frá LSH. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur mikið álag verið á LSH og hefur mikill þrýstingur verið á HSU að taka á móti öllu okkar fólki sem við ráðum við að sinna. �?etta kallar á að flæði deildarinnar sé mikið. Deildin er ekki með hvíldarrými eins og er. �?ær innlagnir eiga að fara eftir ákveðnu ferli í gegnum Færni- og heilsumatsnefnd sem metur eftir ákveðnu kerfi þörf einstaklinga fyrir vistun í hvíldarrými á hjúkrunardeildum.
Um leið og sjúklingur leggst inn er farið að huga að útskrift hans. �?á er skoðuð áætluð lengd dvalar hér og hvort sjúklingur komist yfirleitt heim, hvaða aðstoð hann þarf með heimahjúkrun ef þess er þörf og einnig aðstoðum við sjúklinga/aðstandendur við að sækja um mat hjá Færni- og heilsumatsnefnd ef þess er þörf.
Við viljum koma að sem flestum sunnlenskum sjúklingum sem virkilega þurfa á sjúkrahúslegu að halda. Að við þurfum ekki að senda eldri sjúklinga okkar á LSH vegna þess að deildin er full. �?að er því mikilvægt að halda flæði þannig að flestir sem þurfa á okkur að halda komist að.
f.h Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands
Guðrún Kormáksdóttir
hjúkrunardeildarstjóri lyflækningadeildar HSU á Selfossi

Nýjustu fréttir

Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.