Lýsa yfir hættustigi Almannavarna í Vestmannaeyjum

Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að lýsa yfir hættustigi Almannavarna vegna skemmda á neysluvatnslögn sem liggur til Vestmannaeyja. Raunveruleg hætta er á að neysluvatnslögnin rofni alveg.
Fyrir liggur að umfang skemmda er mikið og alvarlegt. Skemmdirnar ná yfir um 300 metra kafla á lögninni. Á myndum sem teknar hafa verið neðansjávar sést jafnframt að lögnin hefur færst verulega úr stað. Þessi staða gerir möguleika á bráðabirgðaviðgerð erfiða. Eina varanlega lausnin er ný lögn. Mikilvægt er að vinna mat á afleiðingum sem takmarkað rennsli vatns eða algert rof hefði á íbúa og starfsemi í Vestmannaeyjum og hrinda af stað mótvægisaðgerðum til að koma í veg fyrir að neyðarástand skapist.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, í samráði við lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjabæ, HS veitur, viðbragðsaðila og aðra hagaðila, vinna á næstu dögum að tillögum og framkvæmdum því tengt. Markmið þeirrar vinnu er að tryggja öryggi og velferð Vestmanneyinga.
Að svo komnu er lögnin enn nothæf og þjónar vatnsþörf Vestmannaeyja að fullu. Því er ekki þörf á að spara eða safna vatni að svo stöddu.

Nýjustu fréttir

ÍBV og Macron í samstarf
Nýtt skólaár hafið hjá Grunnskóla Vestmannaeyja
Fimm ástæður fyrir JÁ-inu mínu
Stefnir í stærsta ágústmánuðinn í botnfiskvinnslu í langan tíma
Skólasetning GRV fór fram í morgun
Rúmlega tíundi hver hefur kosið utan kjörfundar
Ný strætóáætlun til og frá Landeyjahöfn
Vetrarstarf ÍBV hefst í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.