Maí sól – Lag til ömmustelpunnar
Myndin sem fylgir laginu er úr málverki eftir Bjarteyju Gylfadóttur.

„Á morgun, 1. maí kemur út fyrsta lagið af plötunni Sólarlagi á Spotify, væntanlega eftir miðnætti í nótt,“ segir Guðrún Erlingsdóttir sem stefnir á tónleika í Eldheimum á goslokum í sumar þar sem platan verður kynnt.

„Lagið fjallar um ömmustelpuna mína,  sem verður 17 ára á morgun. Lagið var samið til hennar og textinn fjallar um heimsóknirnar hennar þegar hún var lítil til Rúnu ömmu og Gylfa afa í Dverghamri. Nafnið Maí sól kemur til af því að hún fæddist fyrsta dag maí, á sjálfan verkalýðsdaginn, og kom með mikla sól inn í líf mitt.“

Hljóðfæraleikarar í þessu lagi eru þeir sömu og á Sólarlagi: Jóhann Ásmundsson á trommur, Ásmundur Jóhannsson á bassa, Sigurgeir Sigmundsson á gítar og Arnór Vilbergsson á hljómborð. „Sísí Ástþórs syngur bakraddir en ég og dóttir mín, Jóhanna Björk Gylfadóttir, syngjum lagið saman“ segir Guðrún en vinnsla plötunnar er í fullum gangi.

„Platan gengur vel og er nú í Þýskalandi í svokölluðum „skurði“, en fer síðan til Danmerkur um 20. maí. Við Gylfi ætlum til Danmerkur til að hlusta á prufueintak af plötunni. Þegar ég hef samþykkt hana fer hún í framleiðslu og við Gylfi verðum viðstödd þegar platan fer í pressun.

Ég var að bæta Sólarlagi við á geisladiski (CD), þannig að nú geta allir tryggt sér Sólarlag á vínylplötu, geisladiski og stafrænt. Um að gera að tryggja sér eintak á Karolinafund – söfnunin þar stendur enn,“ segir Guðrún en í undirbúningi eru útgáfutónleikar í Eldheimum á goslokum.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.