Mik­il­væg­ur sig­ur og lok­ar góðum des­em­ber­mánuði

ÍBV náði í tvö stig í 13. um­ferð Olís­deild­ar karla í hand­knatt­leik í Garðabæn­um í dag með eins marks sigri á Stjörn­unni 28:27. Theo­dór Sig­ur­björns­son skoraði sig­ur­markið þegar hálf mín­úta var eft­ir.

Fann­ar Þór Friðgeirs­son, leikmaður ÍBV sagði í samtali við mbl.is vera ánægður með upp­skeru liðsins í des­em­ber­mánuði. „Þetta var svaka­lega mik­il­væg­ur sig­ur og lok­ar góðum des­em­ber­mánuði fyr­ir okk­ur. Eft­ir erfiða byrj­un höf­um við nú unnið fjóra leiki í röð. Erum um miðja deild en einnig í 8-liða úr­slit­um í bik­arn­um. Við get­um því andað ró­lega og unnið vel í okk­ar mál­um í janú­ar,“ sagði Fann­ar. Hann er bjart­sýnn á gott gengi ÍBV eft­ir hið langa frí sem nú tek­ur við í deild­inni. „Ég er viss um að við eig­um mest inni af öll­um liðum í deild­inni vegna þess að við byrjuðum mótið hræðilega. Þetta er allt að koma því við erum að vaxa sem lið. Ég hugsa að við hefðum klúðrað þess­um leik ef hann hefði farið fram í sept­em­ber en okk­ur tókst að klára dæmið í dag. Það sýn­ir styrk hjá liðinu.“

 

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.