Ísfisktogarar Síldarvinnslunnar og Bergs-Hugins öfluðu minna á nýliðnu ári en á árinu 2019 greint er frá þessu á
vef Síldarvinnslunnar. Er helsta skýringin minni sókn vegna aðstæðna sem mynduðust á mörkuðum í kjölfar heimsfaraldurs. Hinsvegar er verðmæti aflans stöðugt milli ára. Afli ísfisktogarnna á árinu 2020 og verðmæti afla þeirra var sem hér segir:
|
Afli |
Verðmæti |
Vestmannaey VE |
3.900 tonn |
1.170 mkr |
Bergey VE |
4.450 tonn |
1.330 mkr |
Gullver NS |
5.100 tonn |
1.260 mkr |
Aðra sögu er að segja af frystitogaranum Blængi NK. Afli hans var svipaður á árunum 2019 og 2020 en verðmæti aflans jókst töluvert á milli áranna. Á árinu 2020 fiskaði Blængur 7.050 tonn og nam verðmæti aflans 2.413 milljónum króna.