Fallinn er nú frá Páll Pálmason félagi okkar í Kiwanisklúbbnum Helgafelli í Vestmannaeyjum og einn af bestu leikmönnum Íþróttabandalags Vestmannaeyja frá upphafi og sá leikjahæsti, en Palli eins og við öll þekkjum hann var einna af albestu markvörðum landsins um árabil og lék með okkar landsliði á sínum tíma.
Palli var fæddur á Hólagötu í Vestmannaeyjum 11 ágúst 1945 og eins og margir Eyjapeyjar stefndi hugurinn á sjóinn og gekk Palli í Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum og hóf störf á Halkion og síðan með föður sínum á Björgu Ve. Þegar í land var komið starfaði Palli í fiskimjölsverksmiðju FIVE frá 1970 allt til starfsloka og þá sem lengst verkstjóri.
Ég kynntist Palla fyrst þegar ég fór sem gutti heim með Hafþóri heitnum á Hólagötuna að fá okkur eithvað í gogginn þegar við vorum að safna í brennu og þótti mér mikið til koma að hitta bræðurnar Palla og Bóa sem voru miklir jaxlar og spiluðu með meistaraflokki ÍBV og höfðu ákveðnar skoðanir á öllu og harðir í horn að taka þó stutt væri í ljúfleikan, enda skemmtilegir og ljúfmenni inn við beinið.
Leiðir okkar Palla lágu saman að meiri alvöru þegar ég og Ásta keyptum okkur hús að Dverghamri 8 í júni 1983 og áttum við 16 yndisleg ár þar með góðum nágrönnum sem voru með eindæmum hjálplegir og yndislegir í alla staði.
Við Palli gengum í Kiwanisklúbbinn Helgafell um svipað leyti ég 1991 en Palli 1992, og varð Palli strax öflugur félagi með frábæra mætingu og vinnusemi sem allir geta verið stoltir af. Palli var mikill Íþróttamaður og hóf að leika snóker á Mjólkurbarnum í gamla daga hjá Páli Helgasyni og eins og í öllu náði hann góðum árangir og ekki síst eftir að hann gekk til liðs við Kiwanisklúbbinn Helgafell þá tók hann upp þráðinn í snókernum og átti frábærann feril í Klúbbasnóker Eyjamanna.
En nú ertu farinn í sumarlandið kæri vinur og fengið hvíld frá erfiðum sjúkdómi, við félagar í Helgafelli sendum Gunnu og fjölskyldu okkar ynnilegustu samúðarkveðjur, það verður mikil söknuður að hafa ekki Palla með í klúbbstarfinu en minningin um góðan vin og Kiwanisfélaga lifir.
F.H Kiwanisklúbbsins Helgafells
Tómas Sveinsson





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.