Næstu bólusetningar í Vestmannaeyjum

Bólusetningar í Vestmannaeyjum ganga samkvæmt áætlun.

Á miðvikudag er verið að ljúka seinni bólusetningu hjá um 200 manns sem fá Pfizer .  Einnig verður boðaður nýr hópur – börn með undirliggjandi áhættuþætti 12 – 15 ára .   Á næstu vikum verður haldið áfram með seinni bólusetningar þeirra sem fengið hafa Phizer bóluefni.

Fyrri hluta júlí er komið að seinni bólusetningu hjá stórum hópi fólks sem fær Astra Zenica

Á fimmtudaginn verður “Opinn dagur” fyrir þá sem óska eftir bólusetningu með Janssen, þó með þeim formerkjum að folk er beðið um að skrá sig fyrirfram í bólusetningar.

Þessi tími er ætlaður þeim sem fengið hafa covid áður,  og fyrir aðra þá sem ekki hafa fengið boðun eða ekki mætt en óska eftir bólusetningu.

Þeir sem óska eftir að mæta eru beðnir um að hringja í skiptiborð HSU í Vestmannaeyjum, sími 4322500 og verður þeim gefinn tími í bólusetningu.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.